Bólstaður

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. júlí 2007 kl. 11:59 eftir Johanna (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. júlí 2007 kl. 11:59 eftir Johanna (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Bólstaður er lengst til vinstri á myndinni

Húsið Bólstaður sem stóð við Heimagötu 18 var byggt árið 1908 af Brynjólfi Stefánssyni, skósmið. Kona Brynjólfs var Halla Jónsdóttir frá Dölum og sonur þeirra var Jóhannes G. Brynjólfsson forstjóri Ísfélags Vestmannaeyja til margra ára.

Þegar byrjaði að gjósa bjuggu í húsið við Heimagötu 18, hjónin Hafsteinn Ágústson og Íris Sigurðardóttir ásamt börnum sínum Erni, Ágústu, Aðalheiði og Láru.


Heimildir

  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.