Ágústa Hafsteinsdóttir (Bólstað)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Ágústa Hafsteinsdóttir)
Fara í flakk Fara í leit
Heimasæturnar á Bólstað f.v. Alla, Ágústa og Lára

Ágústa Hafsteinsdóttir er fædd 1. desember 1959. Gosnóttina 1973 bjó hún á Bólstað við Heimagötu 18, ásamt foreldrum sínum Hafsteini og Írisi og systkinum sínum Öllu, Láru og Erni.

Úr verkefninu Byggðin undir hrauninu.

Samantekt Helgu Jónsdóttur árið 2007.

Eigandi myndarinnar er Íris Sigurðardóttir.

Frekari umfjöllun

Ágústa Hafsteinsdóttir frá Bólstað við Heimagötu 18, húsfreyja fæddist 1. desember 1959.
Foreldrar hennar voru Hafsteinn Ágústsson frá Varmahlíð, húsasmíðameistari, f. 1. nóvember 1929, d. 21. apríl 2016, og síðari kona hans Íris Sigurbjörg Sigurðardóttir frá Burstafelli, húsfreyja, f. þar 25. september 1933, d. 26. júlí 2011.

Börn Hafsteins og fyrri konu hans Hrefnu Guðbjargar Oddgeirsdóttur:
1. Sara Hafsteinsdóttir húsfreyja, sjúkraþjálfari, f. 4. júní 1952 í Stafnesi.
2. Svava Hafsteinsdóttir húsfreyja, sérkennari við leikskóla, f. 26. ágúst 1953 í Stafnesi.
Börn Hafsteins og Írisar:
1. Aðalheiður Hafsteinsdóttir, húsfreyja, f. 15. janúar 1959 á Sj.
2. Ágústa Hafsteinsdóttir húsfreyja, starfsmaður Hraunbúða, f. 1. desember 1959 á Sj.
3. Lára Hafsteinsdóttir húsfreyja, móttökuritari, f. 8. mars 1961 á Sj.
4. Hafdís Hafsteinsdóttir, f. 2. október 1963 á Sj., d. 10. október 1963.
5. Örn Hafsteinsson verslunarmaður í Reykjavík, f. 1. apríl 1965 á Sj.
6. Árni Hafsteinsson iðnverkamaður í Reykjavík, f. 5. maí 1973.

Ágústa var með foreldrum sínum.
Hún vann við fiskiðnað og við aðhlynningu í Hraunbúðum.
Þau Ástþór giftu sig í mars 1994, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu við Faxastíg 31. Þau búa við Helgafellsbraut.

I. Maður Ágústu, (mars 1994), er Ástþór Jónsson sjómaður, stýrimaður, útgerðarmaður, f. 26. ágúst 1957.
Börn þeirra:
1. Sigríður Helga Ástþórsdóttir starfsmaður hjá Almannavörnum í Rvk., f. 4. desember 1982. Maður hennar Hilmar Stefánsson Gunnarssonar.
2. Hafdís Ástþórsdóttir hárgreiðslumeistari, rekur Shampó, f. 14. júlí 1986. Maður hennar Gísli Matthías Auðunsson Stefánssonar..
3. Anna Hlín Ástþórsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 24. desember 1993. Maður hennar Hjalti Enok Pálsson Ágústssonar.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.