Þorsteinsbúð

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. júlí 2007 kl. 09:35 eftir Johanna (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. júlí 2007 kl. 09:35 eftir Johanna (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Talið er að húsið hafi verið byggt árið 1906. Sennilega er húsið að stofni til viðbygging við Jónsborg en síðan flutt á Kirkjuveg árið 1926. Árið 1934 var það flutt yfir götuna og stækkað árið 1954 í vestur. Í húsinu var fyrst rekin skóbúð, en í október árið 1926 opnar Þorsteinn Johnson þar bókabúð. Óskar Þorsteinsson tekur síðan við bókabúðinni fram að gosi. Seinna meir var þarna til húsa: reiðhjólaverkstæði, harðfiskverkun, Eyjafiskur, Gallerý Prýði, verslun og verkstæði.

Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu



Heimildir

  • Heimagata. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.