Bókabúðin

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Þorsteinsbúð)
Fara í flakk Fara í leit
Bókabúðin

Húsið Bókabúðin (Þorsteinsbúð) er við Kirkjuveg 12. Nafngiftin Bókabúðin er tilkomin vegna þess að Þorsteinn Johnson var með bókabúð í húsinu um árabil.Talið er að húsið hafi verið byggt árið 1906. Sennilega er húsið að stofni til viðbygging við Jómsborg en síðan flutt á Kirkjuveg árið 1926. Árið 1934 var það flutt yfir götuna og stækkað árið 1954 í vestur.

Húsið var áður kallað Gata og var tómthús. Áður fyrr geymdi hreppurinn þurfalinga sína þar.

Í húsinu var fyrst rekin skóbúð, en í október árið 1926 opnar Þorsteinn Johnson þar bókabúð. Óskar Þorsteinsson, sonur Þorsteins, tekur síðan við bókabúðinni fram að gosi.

Eftir gos hefur ýmis starfsemi verið í húsinu t.d. reiðhjólaverkstæði. Nú er í húsinu listaverkaverslunin Gallerý Prýði og trésmíðaverkstæðið Börkur í eigu hjónanna Róberts Sigmundssonar og Svanhildar Gísladóttur.

Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu



Heimildir

  • Heimagata. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.