Þóroddur Ólafsson (vélstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Þóroddur Ólafsson (Ekru))
Fara í flakk Fara í leit

Þóroddur Ólafsson vélstjóri fæddist 1. júní 1900 í Dalseli u. V.- Eyjafjöllum og lést 16. maí 1989.
Foreldrar hans voru Ólafur Ólafsson bóndi, f. 6. júlí 1856 í Hólminum í Landeyjum, og kona hans Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 9. september 1859 í Múlakoti í Fljótshlíð, d. 7. september 1930.

Systir Þórodds, í Eyjum, var
1. Ingibjörg Ólafsdóttir húsfreyja í Bólstaðarhlíð, f. 12. apríl 1895, d. 22. júní 1976.

Þóroddur var með foreldrum sínum í Eyvindarholti 1910.
Hann lærði vélstjórn, var sjómaður, en vann lengst á Rafstöðinni.
Þóroddur var leigjandi í Stíghúsi við Njarðarstíg 5 1920, á Sólbergi við Brekastíg 3 1930, var leigjandi með Bjargeyju í Víðidal við Vestmannabraut 33 við fæðingu Erlu Bryndísar 1932, í Stakkagerði 1934, á Stóra-Gjábakka við Bakkastíg 8 með sömu áhöfn 1940 og við fæðingu andvana barns þeirra 1942, á Ekru við Urðaveg 20 1945 með Bjargeyju, Erlu Bryndísi og Sigríði. Þau Bjargey bjuggu þar enn við Gos 1973, en síðar við Eyjahraun 9.
Bjargey lést 1986 og Þóroddur 1989.

I. Kona Þórodds, (26. mars 1932), var Bjargey Steingrímsdóttir húsfreyja, f. 13. ágúst 1909, d. 29. október 1986.
Börn þeirra:
1. Erla Bryndís Þóroddsdóttir húsfreyja, f. 17. maí 1932 í Víðidal. Maður hennar Stefán Gunnar Stefánsson.
2. Andvana stúlka, f. 24. júní 1942 á Stóra- Gjábakka.
3. Sigríður Þóroddsdóttir húsfreyja, f. 8. september 1943 á Ekru. Maður hennar Ragnar Guðmundsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.