„Óskar Kortsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
Lína 11: Lína 11:
1. Hulda Emilía Korts Óskarsdóttir húsfreyja, verkakona á Akranesi, f. 24. maí 1935 á Akranesi. Maður hennar: Þórarinn Guðmundsson skipstjóri<br>
1. Hulda Emilía Korts Óskarsdóttir húsfreyja, verkakona á Akranesi, f. 24. maí 1935 á Akranesi. Maður hennar: Þórarinn Guðmundsson skipstjóri<br>
2. Ester Óskarsdóttir húsfreyja, f. 6. nóvember 1937 á Akranesi. Maður hennar: Aðalsteinn Haraldsson sjómaður. <br>
2. Ester Óskarsdóttir húsfreyja, f. 6. nóvember 1937 á Akranesi. Maður hennar: Aðalsteinn Haraldsson sjómaður. <br>
3. Sigrún Korts Óskarsdóttir, f. 29. desember 1949 á Akranesi, húsfreyja í London. Maður hennar: Timothy Friend auglysingateiknari.  
3. Sigrún Korts Óskarsdóttir, f. 29. desember 1949 á Akranesi, húsfreyja í London. Maður hennar: Timothy Friend auglýsingateiknari.  
{{Heimildir|
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].  
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].  

Núverandi breyting frá og með 19. september 2020 kl. 21:49

Óskar Kortsson frá Fit u. Eyjafjöllum, vélvirki á Akranesi fæddist 2. október 1907 og lést 11. nóvember 1987.
Foreldrar hans voru Kort Elísson lausamaður, vinnumaður, bóndi, sjómaður, f. 8. ágúst 1883 í Ásólfsskálasókn u. Eyjafjöllum, d. 8. ágúst 1944 og Þórdís Ingibjörg Sæmundsdóttir vinnukona, húsfreyja, f. 15. mars 1885 á Eyrarbakka, d. 16. júní 1986.

Óskar var með móður sinni u. Eyjafjöllum í æsku. Faðir hans var lausamaður um skeið á sama bæ.
Hann fylgdi móður sinni til Eyja 1925 og var með henni í Sigtúni 1927 og á Seljalandi 1930, þá sjómaður. Óskar kvæntist Magnýju í Litlabæ og bjó á Akranesi, stundaði þar vélvirkjun.
Magný lést 1980, Ingibjörg móðir hans lést 101 árs 1986 og hann lést 1987.

Kona Óskars var Magnea Sigurlaug Ólafsdóttir (Magný) frá Litlabæ, húsfreyja, f. 19. nóvember 1911, d. 20. mars 1980.
Börn þeirra:
1. Hulda Emilía Korts Óskarsdóttir húsfreyja, verkakona á Akranesi, f. 24. maí 1935 á Akranesi. Maður hennar: Þórarinn Guðmundsson skipstjóri
2. Ester Óskarsdóttir húsfreyja, f. 6. nóvember 1937 á Akranesi. Maður hennar: Aðalsteinn Haraldsson sjómaður.
3. Sigrún Korts Óskarsdóttir, f. 29. desember 1949 á Akranesi, húsfreyja í London. Maður hennar: Timothy Friend auglýsingateiknari.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Æviskrár Akurnesinga. Ari Gíslason. Sögufélag Borgfirðinga.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.