Íþróttamiðstöðin

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júlí 2005 kl. 10:26 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júlí 2005 kl. 10:26 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Íþróttamiðstöðin í Brimhólalaut, var byggð árið 1976 og var þá 3.414 m2. Vígsla hallarinnar fór fram laugardaginn 10. júlí 1976 í frábæru veðri að viðstöddum um 1000 manns. Mikill áhugi var fyrir þessu nýja húsi og til marks um það fóru 1329 manns í laugina mánudaginn eftir vígsluna.

Bygging Íþróttamiðstöðvarinnar

Í desember árið 1973 var skipuð nefnd sem skyldi athuga byggingu varanlegra íþróttamannvirkja í Vestmannaeyjum.

Bygging nýs húss

Fyrsta skóflustunga að nýja íþróttahúsinu var tekin 17. júní árið 2000 og voru verklok 28. desember 2001. Hið nýja íþróttahús er 3.081 m2 og þegar við það er bætt eldra húsinu og stækkun á aðalandyri og millibyggingu til austurs þá er allt húsið 6.581 m2.

Í nýja salnum (sem er sá stærsti á landinu) eru áhorfendapallar beggja megin fyrir um 800 manns, þar af 600 í sætum. Íþróttamiðstöðin býður nú uppá fullkomna keppnisaðstæður fyrir nánast allar keppnisíþróttir, hér er fullkomnasta fimleikagryfja landsins, 3 löglegir handboltavellir, líkamsræktarsalur og ein besta sundlaug landsins. Þá er einnig boðið upp á glæsilega skrifstofuaðstöðu fyrir allar deildir ÍBV. Starfsmannafjöldi er 14 100% stöðugildi og 1 50% stöðugildi og er unnið á vöktum. Fjöldi sem kemur árlega í húsið er í kringum 220.000 manns og þá má reikna með því að á 26 árum séu búin að koma um 5,7 milljónir manna í húsið en ætla má að einhverjir hafi komið oftar en einu sinni.



Heimildir

  • Aðalskipulag Vestmannaeyja 2002-2014
  • Íþróttamiðstöðin. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1977.