Ásþór Guðmundsson (Heiðarbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. apríl 2019 kl. 20:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. apríl 2019 kl. 20:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ásþór Guðmundsson (Heiðarbæ)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Ásþór Guðmundsson frá Heiðarbæ, rafsuðumaður fæddist 20. mars 1918 í Tungu við Suðurlandsbraut í Reykjavík og lést 17. nóvember 1985 á Sjúkrahúsi Keflavíkur.
Foreldrar hans voru Guðmundur Jónsson verkamaður, bóndi, f. 11. apríl 1876 í Ártúni við Reykjavík, d. 2. október 1958, og síðari kona hans Guðríður Þórunn Ásgrímsdóttir húsfreyja, f. 26. september 1880 á Kröggólfsstöðum í Ölfusi, d. 11. maí 1954.

Börn Guðmundar og Kristjönu Rósu Sigurðardóttur fyrri konu hans:
1. Sigurður Guðmundsson, f. 27. maí 1904 á Þingeyri í Sandasókn, Ís., drukknaði 17. mars 1928.
2. Þorbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja á Boðaslóð 3, f. 29. ágúst 1905 í Reykjavík, d. 10. febrúar 1960.
3. Guðni Tómas Guðmundsson sjómaður, f. 20. september 1906 í Reykjavík, d. 2. apríl 1995.
4. Ingólfur Guðmundsson úrsmiður í Eyjum, f. 27. júlí 1909 í Reykjavík, d. 28. febrúar 1968.
Börn Guðmundar og Guðríðar Þórunnar síðari konu hans í Eyjum:
5. Ásþór Guðmundsson rafsuðumaður, f. 20. mars 1918 í Reykjavík, síðar á Vatnsleysuströnd, d. 17. nóvember 1985.
6. Kristján Rósberg Guðmundsson pípulagningamaður, f. 17. september 1919 í Reykjavík, síðar á Vatnsleysuströnd, d. 24. júlí 1975.
7. Matthías Gunnlaugur Guðmundsson húsasmiður, síðar í Keflavík, f. 19. nóvember 1920 í Reykjavík, d. 25. október 1997.
Barn Guðmundar með Vilborgu Kristjánsdóttur:
8. Kristjana Guðlaug Guðmundsdóttir húsfreyja á Þingeyri við Dýrafjörð, f. 25. júní 1901, d. 14. júlí 1978. Menn hennar voru Óskar Gunnar Jóhannsson og Bjarni Guðbjartur Jóhannsson.
Barn Guðmundar með Ólínu Sigríði Ólafsdóttur:
9. Margrét Guðlaug Guðmundsdóttir húsfreyja á Siglufirði, f. 11. desember 1917, d. 2. september 1992. Maður hennar var Jósafat Sigurðsson.

Ásþór var með foreldrum sínum í æsku, fluttist með þeim til Eyja 1921 og bjó með þeim á Eiðinu, að Ofanleiti, í Stórhöfðavita, á Brimhólum og í Heiðarbæ. Þau fluttust að Hnausum á Snæfellsnesi 1936 og að Skjaldartröð í Breiðavík þar.
Hann fluttist með þeim í Voga á Vatnsleysuströnd 1948.
Ásþór vann á Keflavíkurflugvelli og síðan í Skipasmíðastöð Njarðvíkur og þar tók hann próf í rafsuðu og vann við það þar til ársins 1979, er hann lét af störfum vegna veikinda.
Hann dvaldi síðustu ár sín á Hlévangi í Keflavík.
Ásþór lést 1985.

Kona hans var Ólafía Sigríður Brynjólfsdóttir, f. 28. febrúar 1936.
Börn þeirra:
1. Gunnar Ásþórsson, f. 18. október 1952. Hann er ókvæntur.
2. Jóhannes Brynjólfur Hólm Ásþórsson, f. 4. febrúar 1954. Kona hans Sigrún Baldursdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.