„Árndís Lára Óskarsdóttir“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Verndaði „Árndís Lára Óskarsdóttir“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 25. apríl 2014 kl. 10:40

Árndís Lára Óskarsdóttir (Dídí) húsfreyja, skrifstofustjóri í Reykjavík, fæddist 4. ágúst 1933 í Eyjum.

Dídí drífur einn í dansinn í Gagnfræðaskólanum.

Foreldrar hennar voru Óskar Ástvaldur Lárusson, f. 1911 og k.h. Sigríður Árnadóttir, f. 1910.
Árndís Lára (Dídí) var alin upp í Neskaupstað. Hún var í Gagnfræðaskólanum í Eyjum 1950-1951. Þar var hún drifkraftur í félagslífinu og söng m.a. í kvintett nemenda.
Eiginmaður (25. desember 1952): Friðrik Jón Sigurðsson verkstjóri í Neskaupstað, síðan starfsmaður Álfélagsins í Straumsvík, f. 25. sept. 1931 í Neskaupstað. Foreldrar hans voru Sigurður Evert Jensson bakarameistari í Neskaupstað, d. 3. nóv. 1960 og k.h. Nikolína Dagbjört Jónsdóttir, d. 15. ágúst 1972.
Börn þeirra eru:

  1. Sigurbjörg Ósk, f. 28. des. 1952,
  2. Lína Dagbjört, f. 10. des. 1954,
  3. Árni Óli, f. 15. ágúst 1956.

Heimildir