Álsey

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. júní 2005 kl. 14:53 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. júní 2005 kl. 14:53 eftir Smari (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Álsey (Álfsey) liggur um 3.5 km vestur af Stórhöfða og er þriðja stærsta úteyjan, um 0.25km². Eyjan er girt háum hömrum, að norður hliðinni undanskilinni, og eru þeir næstum eggsléttir austan og sunnan til. Eyjan er hálend og er 137m hár grasi þakinn hryggur á miðri eyju og er hallinn mikill niður á brúnirnar. Af þessum sökum er lundabyggð þétt í Álsey og er lundinn mikið veiddur og þar er einnig fé haft á beit. Veiðikofi Álseyinga er staðsettur norðan megin á eyjunni.