Tjaldur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. febrúar 2006 kl. 21:54 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. febrúar 2006 kl. 21:54 eftir Frosti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Fuglar
Sjófuglar
Vaðfuglar
Mávar, kjóar, þernur
Andfuglar
Spörfuglar
Annað
Útdauðir fuglar
Tjaldur

Tjaldur Haematopus ostralegus

Tjaldurinn er af strandfuglaætt. Tjaldurinn er svartur að ofan og um hausinn, en niður með bringu er hann svo hvítur. Tjaldurinn er með stóran og tignarlegan gogg rauðgulan að lit og bleikrauða sterkbyggða fætur. Fuglinn er 40-46 cm á lengd og um 570 g að þyngd. Tjaldurinn er bæði upp til móa og niður með sjó, hann er auðþekktur bæði af lit og hjóði. Tjaldinum tók að fjölga hér eftir 1920 og er nú algengur varpfugl á Íslandi. Hann er að mestu leiti farfugl þó að einhver hluti stofnsins verði eftir. Sá fugl sem fer frá Íslandi flýgur aðallega til Bretlandseyja.

Við sjóinn lifir tjaldurinn mest á kræklingi, hjartaskeljum og öðrum skákvikindum, en inn til landisins eru það ánamaðkar og skordýr sem eru aðalfæðan. Tjaldurinn heldur til við ströndina og í malarbörðum upp til landsins. Varptíminn hefst seint í apríl eða í maíbyrjun. Kvennfuglinn hefur þó oft mörg hreiður um að velja. Hreiðurgerðin er lítil sem engin, oftast laut í möl aða skeljabrotum. Eggin eru oftast 3, en geta verið á bilinu 1-4. Þau eru ljósbrún eða grá með svörtum rákum. Útungunartíminn er 21-27 dagar. Ungarnir verða svo fleygir 28-35 dögum eftir útungun og verða kynþroska 3-5 ára.