Byggðasafn Vestmannaeyja

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. nóvember 2005 kl. 21:27 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. nóvember 2005 kl. 21:27 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Byggðasafn Vestmannaeyja var stofnað árið 1932. Frumkvöðull að stofnun safnsins og driffjöður í áratugi var Þorsteinn Þ. Víglundsson, en hann sá hættuna á því að menningarverðmæti færu forgörðum ef ekki yrði hafist handa við söfnun þeirra. Fyrstu árin var munum komið fyrir í geymslu á heimili hans, en síðar fékk safnið inni á háalofti nýbyggingar Gagnfræðaskólans, og árið 1964 var safnið opnað almenningi á 3. hæð Sparisjóðsins. 1978 var safnið opnað á ný eftir gosið og þá í Safnahúsinu.

Byggðasafn á eldstöðvum

23. janúar 1973 hófst eldgos á Heimaey. Þann 27. janúar lagði sex manna hópur undir stjórn Þorsteins Þ. Víglundssonar af stað til Eyja frá Þorlákshöfn með Gullbergi VE til þess að koma munum úr Byggðasafninu í örugga geymslu á fastalandinu. Í hópnum voru m.a. synir Þorsteins og fleiri skyldmenni. Unnið var sleitulaust að því að búa muni Byggðasafnsins undir flutninginn dagana 28. og 29. janúar. Mununum var komið fyrir í fjórum gámum og voru þeir fluttir með Dettifossi til Reykjavíkur.

Í Reykjavík tók á móti þeim Þór Magnússon, þjóðminjavörður, sem ásamt sínu fólki kom mununum fyrir í geymslum Þjóðminjasafnsins. Alls tók þessi ferð tæpa fjóra sólarhringa.


Heimildir