Sigurbjörg Sigurðardóttir (Stað)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. nóvember 2012 kl. 18:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. nóvember 2012 kl. 18:03 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðrar sem hafa borið nafnið „Sigurbjörg Sigurðardóttir


Sigurbjörg

Þorgerður Sigurbjörg Sigurðardóttir frá Stað fæddist 5. maí 1895 í Kirkjulandshjáleigu í Austur-Landeyjum og lést 16. mars 1969. Foreldrar hennar voru Guðrún Jónasdóttir húsfreyja, ekkja, og ráðsmaður hennar Sigurður Ólafsson, síðar á Bólstað í Eyjum, formaður á Fortúnu. Hálfsystkini Sigurbjargar af hjónabandi Guðrúnar og búsett voru í Eyjum voru:

  1. Kári bóndi í Voðmúlastaða-Suðurhjáleigu, síðar í Presthúsum í Eyjum, f. 9. júlí 1880, d. 10. ágúst 1925;
  2. Bernótus útvegsmaður í Stakkagerði, f. 23. apríl 1884, drukknaði 12. febrúar 1920;
  3. Sigurður járnsmiður á Hæli, f. 11. maí 1889, d. 25. apríl 1974.

Eiginmaður Sigurbjargar var Kristján Egilsson. Þau byggðu húsið Stað við Helgafellsbraut 10. Börn þeirra voru Bernótus, Símon, Egill, Guðrún og Emma.

Myndir