Sigurður Sigurðsson (Hæli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Sigurður Sigurðsson


Sigurður Sigurðsson járnsmiður frá Hæli fæddist 11. maí 1889 og lést 25. apríl 1974. Hann var sonur Sigurðar Þorbjörnssonar og Guðrúnar Jónasdóttur.

Sigurður byggði húsið Hæli ásamt Hannesi Hreinssyni árið 1922. Hann flutti inn með móður sinni en kvæntist síðar Önnu Gísladóttur f. 1898 d. 1984, ekkju Margeirs Rögnvaldssonar. Þau Sigurður og Anna eignuðust Trausta f. 1932 og Brynju f. 1934.