Björn Þórðarson (sýslumaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júní 2005 kl. 20:14 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júní 2005 kl. 20:14 eftir Smari (spjall | framlög) (Stílfæring.)
Fara í flakk Fara í leit

Björn Þórðarson, settur sýslumaður 1909 til 1910, fæddist að Móum á Kjalarnesi 6. febrúar 1879. Hann var sonur Þórðs hreppstjóra Runólfssonar að Saurbæ á Kjalarnesi Þórðarsonar, konu hans Ástríði Jochumsdóttur frá Skógum í Þorskafirði Magnússonar.

Björn var föðurbróðir Ástþórs Matthíassonar, sem lengi var forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja, og Þórðar Runólfssonar fyrrverandi öryggismálastjóra og þeirra systkina.

Hann útksrifaðist sem stúdent í Reykjavík 1902 og hlaut cand. juris gráðu frá Kaupmannahafnarháskóla 1908. Hann starfaði sem ritari hæstaréttar 1920 til 1928 og var forsætisráðherra 1942 til 1944 og fór einnig tímabundið með félags-, heilbrigðis- og kirkjumál og ennfremur dóms- og menntamál. Kona hans var Ingibjörg Ólafsdóttir alþm. á Álfgeirsvöllum Briem og áttu þau tvö börn, Þórð ríkissaksóknara og Dóru.

Hann lést árið 1963.