Björn Þórðarson (sýslumaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júní 2005 kl. 13:48 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júní 2005 kl. 13:48 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Björn Þórðarson, settur sýslumaður 1909 til 1910. Fæddur að Móum á Kjalarnesi 6. febrúar 1879. dáinn 25. 1963. Foreldrar Þórður hreppstjóri Runólfsson að Saurbæ á Kjalarnesi Þórðarsonar og kona hans Ástríður Jochumsdóttir frá Skógum í Þorskafirði Magnússonar. Bjórn var föðurbróðir Ástþórs Matthíassonar, sem lengi var forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja og Þórðar Runólfssonar fyrrverandi öryggismálastjóra og þeirra systkina. Stúdent í Reykjavík 1902 og cand. juris frá Kaupmannahafnarháskóla 1908. Ritari hæstaréttar 1920 til 1928 og forsætisráðherra 1942 til 1944 og fór einnig tímabundið með félags-, heilbrigðis- og kirkjumál og ennfremur dóms- og menntamál. Kona hans var Ingibjörg Ólafsdóttir alþm. á Álfgeirsvöllum Briem og áttu þau tvö börn, Þórð ríkissaksóknara og Dóru.