Árdalur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. júní 2007 kl. 10:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. júní 2007 kl. 10:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Tengill og viðbót.)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Árdalur var byggt árið 1929 og stendur við Hilmisgötu 5. Árni J. Johnsen byggði þetta hús og bjó þar ásamt konu sinni Margréti Jónsdóttur frá Suðurgarði í fjölda mörg ár. Óskar Þorsteinsson bóksali bjó einnig í húsinu.

Árdalur

Nú búa í húsinu Grétar Jónatansson og Margrét Áslaug Bjarnhéðinsdóttir, dótturdóttir Árna J. Johnsen.

Í garði Árdals er hæsta tré í Vestmannaeyjum.
Þorsteinn Þ. Víglundsson búfræðingur og skólastjóri gróðursetti í garðinum tré fyrir Árna J. Johnsen 1930. Sama ár fæddust þau Kristín Sigríður dóttir Ingigerðar og Þorsteins og Sigfús sonur Margrétar og Árna. Þau gengu í hjónaband 1952.