Sigmundur Andrésson (forstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. mars 2025 kl. 13:14 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. mars 2025 kl. 13:14 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Sigmundur Andrésson (forstjóri)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigmundur Andrésson sjávarútvegsfræðingur, forstjóri fiskiðnaðarverksmiðju í Frankfurt í Þýskalandi fæddist 14. ágúst 1968 í Eyjum.
Foreldrar hans Andrés Sigmundsson, bakarameistari, f. 11. desember 1949, og fyrri kona hans Hrafnhildur Ástþórsdóttir, húsfreyja, íþrótta- og tómstundafræðingur, forstöðumaður, f. 20. júní 1949.

Börn Hrafnhildar og Andrésar:
1. Sigmundur Andrésson sjávarútvegsfræðingur, forstjóri fiskiðnaðarverksmiðju í Frankfurt í Þýskalandi, f. 14. ágúst 1968 í Eyjum. Kona hans Azadeh Masoumi verkfræðingur, af persneskum ættum.
2. Sigurjón Andrésson markaðsfræðingur hjá Sjóvá, f. 10. desember 1970 á Akureyri. Kona hans er Margrét Sara Guðjónsdóttir, menntaskólakennari.
3. Agnes Sif Andrésdóttir viðskipta- og ferðamálafræðingur, skrifstofustjóri hjá Reykjavíkurborg, f. 31. maí 1973, ógift.
Barn Andrésar og Þuríðar, síðari konu hans:
2. Guðrún Heba Andrésdóttir, f. 6. október 1989, d. 29. október 2009.

Þau Azadeh giftu sig, hafa eignast tvö börn.

I. Kona Sigmundar er Azadeh Masoumi, persnesk, verkfræðingur.
Börn þeirra:
1. Asal Andrésson, f. 19. ágúst 2010.
2. Sam Andrésson, f. 1. júní 2021.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.