Bergsstaðir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. mars 2007 kl. 21:52 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. mars 2007 kl. 21:52 eftir Frosti (spjall | framlög) (setti inn tengla)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Bergsstaðir stóð við Urðaveg 24. Það var reist af Elíasi Sæmundssyni á árunum 1902-03. Lengst af bjuggu á Bergsstöðum Guðmundur Tómasson, skipstjóri og kona hans, Elín Sigurðardóttir en Ólafur, sonur þeirra bjó þar einnig með sinni fjölskyldu og var jafnan kenndur við húsið. Þegar gaus bjuggu þar Elín og dóttursonur hennar, Guðmundur Arnar Alfreðsson.