Þorsteinn Ingi Sigfússon

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. nóvember 2006 kl. 11:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. nóvember 2006 kl. 11:56 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þorsteinn Ingi Sigfússon prófessor fæddist 4. júní 1954 í Eyjum. Foreldrar: Sigfús Jörundur Árnason Johnsen, f. 1930 og k.h. Kristín Sigríður Þorsteinsdóttir, f. 1930.
Þorsteinn Ingi varð stúdent 1973. Hann nam eðlisfræði og stærðfræði við Kaupmannahafnarháskóla 1973-78. Doktorsprófi í eðlisfræði lauk hann frá háskólanum í Cambridge á Englandi 1982.
Hann var sérfræðingur við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands, síðar í prófessorsstöðu í eðlisfræði, sem Íslenzka járnblendifélagið kostaði við Háskóla Íslands 1989-1994, en prófessor Háskólans í eðlisfræði frá 1994. Þorsteinn Ingi hefur beitt sér fyrir tengingu Háskólans við atvinnulífið og stofnað mörg sprotafyrirtæki. Eitt þessara fyrirtækja er Íslenzk NýOrka ehf., sem hefur það að markmiði að stuðla að vetnisvæðingu á Íslandi. Þegar alþjóða vetnissamtökin (IPHE) voru stofnuð 2003, var Þorsteinn Ingi kjörinn formaður framkvæmdanefndar þeirra. Hann var sæmdur riddarakrossi íslenzku fálkaorðunnar 2004.
Maki (16. ágúst 1975): Bergþóra Karen Ketilsdóttir kerfisfræðingur í Rvk, yfirmaður upplýsingatæknideildar Kreditkorta h.f (MasterCard) á Íslandi, f. 20. júní 1954.
Foreldrar: Ketill skipstjóri, bifreiðastjóri og verzlunarmaður í Keflavík, f. 27. ágúst 1921 í Hvammi í Höfnum, d. 5. nóv. 2001, Jóns barnakennara, símstöðvarstjóra og oddvita í Hvammi, f. 5. maí 1883, d. 12. des. 1951 í Keflavík, Jónssonar og konu Jóns, Sigríðar Magnúsdóttur húsmóður, f. 1. jan. 1891 í Kirkjuvogi í Höfnum, d. 15. júlí 1946 í Hafnarfirði. Móðir Bergþóru Karenar og kona Ketils (23. júní 1950) var Bergþóra Heiðrún húsmóðir, f. 5. nóv. 1922 á Þverá í Vindhælishreppi í A-Hún., Guðlaugs bónda á Þverá, f. 27. febr. 1891 á Ægissíðu í Þverárhreppi í V-Hún., d. 13. okt. 1977 á Blönduósi, Sveinssonar og konu (20. apríl 1911) Guðlaugs, Rakelar Þorleifar húsmóður, f. 27. sept. 1880 á Ökrum í Haganeshreppi í Skagafirði, d. 30. okt. 1967, Bessadóttur.
Börn: Davíð Þór læknanemi, f. 16. apríl 1980; Dagrún Inga, f. 10. okt. 1989; Þorkell Viktor, f. 23. júlí 1992.

Heimildir:

  • Pers.
  • Járngerðarstaðaætt.
  • Ættir Austur-Húnvetninga.
  • Skagfirzkar æviskrár.