Gunnar Marel Jónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. september 2006 kl. 11:57 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. september 2006 kl. 11:57 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Smáleiðr.)
Fara í flakk Fara í leit
Gunnar Marel Jónsson

Gunnar Marel Jónsson fæddist 6. janúar 1891 og lést 7. maí 1979. Hann flutti til Vestmannaeyja þegar hann var tvítugur. Árið 1914 kvæntist Gunnar Sigurlaugu Pálsdóttur en hún lést árið 1976. Bjuggu þau lengst af í Brúarhúsi sem stóð á horni Vestmannabrautar og Heimagötu. Það fór undir hraun í gosinu 1973. Brúarhús var ævinlega kallað Hornið og börn þeirra Gunnars og Sigurlaugar alltaf kennd við Hornið. Einn sona Gunnars var Tryggvi Gunnarsson vélstjóri, en auk hans átti hann 14 börn. Gunnar og Sigurlaug eignuðust 12 börn, en úr fyrra sambandi átti hann þrjú börn.

Á veturna stundaði Gunnar sjómennsku en vann við smíðar á sumrin.

Gunnar Marel er þó líklega þekktastur fyrir störf sín í skipasmíði og störf hans fyrir Dráttarbraut Vestmannaeyja en þar var hann forstöðumaður frá 1925-1958. Eftir það hafði hann yfirumsjón með allri smíðavinnu til ársins 1968. Gunnar var sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar árið 1940 fyrir störf sín. Stærsti báturinn sem Gunnar smíðaði var Helgi VE-33, um 100 smálestir.



Heimildir

  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja, 1979.