Sigurður Högni Hauksson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. ágúst 2022 kl. 16:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. ágúst 2022 kl. 16:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Sigurður Högni Hauksson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Sigurður Högni Hauksson frá Vatnsdal, bifvélavirkjameistari fæddist þar 17. janúar 1948.
Foreldrar hans voru Haukur Högnason frá Vatnsdal, bifreiðastjóri, f. 7. júlí 1912, d. 13. apríl 1993, og kona hans Jóhanna Jósefína Jósefsdóttir frá Siglufirði, húsfreyja, f. 2. október 1912, d. 2. nóvember 1982.

Börn Jóhönnu og Hauks:
1. Svala Guðný Vatnsdal Hauksdóttir húsfreyja, leiðbeinandi í Eyjum, f. 4. ágúst 1939, d. 11. september 2020. Maður hennar Jón Ingi Hauksson.
2. Ölver Hauksson bifreiðastjóri, f. 11. september 1943, d. 25. september 2018, ókvæntur.
3. Sigurður Högni Hauksson bifvélavirkjameistari í Eyjum, f. 17. janúar 1948. Barnsmóðir hans Elísabet Bjarnason. Fyrrum kona hans Sigríður Fanney Jónsdóttir. Kona hans Margrét Brandsdóttir.
Barn Jóhönnu fyrir hjónaband, með Haraldi Óskari Kristjánssyni frá Ísafirði:
4. Pétur Jóhannesson Haraldsson vélstjóri, f. 26. júní 1933 á Siglufirði, d. 14. júlí 1978 á Ísafirði. Hann ólst upp hjá föðurforeldrum sínum á Ísafirði.

Sigurður var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lærði bifvélavirkjun í Iðnskólanum og hjá Helga Guðjónssyni í Eyjum og hjá honum á Bifreiðaverkstæði SÍS í Reyjavík, varð sveinn um 1975 og fékk meistarabréf um 1978.
Sigurður vann sjálfstætt, en lengst hjá Áhaldahúsinu, til sjötugs.
Hann eignaðist barn með Elísabetu 1978.
Þau Fanney giftu sig, eignuðust tvö börn, en skildu. Þau bjuggu á Jaðri við Vestmannabraut 6.
Þau Margrét giftu sig 1998, eignuðust ekki börn saman, en Margrét átti fyrir fjögur börn. Þau bjuggu á Jaðri.

I. Barnsmóðir Sigurðar Högna var Elísabet Bjarnason, síðar húsfreyja í Mosfellsbæ og á Akureyri, f. 8. apríl 1953, d. 15. ágúst 2020.
Barn þeirra:
1. Camilla Guðjónsdóttir, f. 17. febrúar 1978. Hún er ættleidd. Maður hennar Jóhann Freyr Jónsson.

II. Kona Sigurðar, (skildu), er Sigríður Fanney Jónsdóttir úr Reykjavík, sjúkraþjálfari, f. 1. maí 1946.
Börn þeirra:
2. Sigríður Soffía Sigurðardóttir viðskiptafræðingur, vinnur hjá KPMG og er einn af eigendum fyrirtækisins, f. 19. september 1979 í Reykjavík. Sambúðarmaður hennar Bogi Snær Bjarnason.
3. Svava Sigurðardóttir starfsmaður hjá Valitor, f. 11. desember 1980. Sambúðarmaður hennar Lúðvík Brynjólfsson.

III. Kona Sigurðar, (12. september 1999), er Margrét Brandsdóttir húsfreyja, f. 13. janúar 1949. Hún dvelur í Hraunbúðum.
Börn hennar:
1. Brandur Sigurjónsson, f. 31. janúar 1970.
2. Einar Örn Finnsson, f. 12. desember 1973.
3. Bergrún Finnsdóttir, f. 2. ágúst 1979.
4. Gísli Finnsson, f. 17. apríl 1984.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.