Guðmundur H. Guðjónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júlí 2006 kl. 07:57 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júlí 2006 kl. 07:57 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Bætti við flokki)
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Hafliði Guðjónsson er fæddur 22. des. 1940 að Kjörvogi í Árneshreppi á Ströndum. Hann stundaði nám við Tónskóla Þjóðkirkjunnar, við Kirchenmusikschule í Hannover, Royal School of Church Music í London og nám í orgellleik í Róm og Siena á Ítalíu. Var skólastjóri Tónlistarskóla Barðastrandarsýslu frá 1968 til 1970 og organisti við Patreksfjarðarkirkju á sama tíma. Guðmundur fluttist til Vestmannaeyja árið 1970 og varð organisti Landakirkju og stjórnandi Kórs Landakirkju auk þess sem hann hefur verið skólastjóri Tónlistarskóla Vestmannaeyja. Kona Guðmundar er Dagný Pétursdóttir (áður Ubonwan Paruska) frá Thailandi, oftast kölluð Deng, og búa þau að Helgafellsbraut 6. Þau eiga tvær dætur, Rósu og Védísi. Guðmundur stofnaði jeppaklúbbinn Herði í Vestmannaeyjum og hefur stjórnað hálendisferðum á hans vegum um árabil.