Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. júlí 2006 kl. 08:52 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. júlí 2006 kl. 08:52 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigmar Þór Sveinbjörnsson fæddist 23. mars 1946 í Eyvindarholti við Brekastíg í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Sveinbjörn Snæbjörnsson og Matthildur Þórunn Matthíasdóttir. Matthildur var berklaveik og var Sigmar því alinn upp hjá ömmu sinni, Þórunni Júlíu Sveinsdóttur sem kennd var við Byggðarenda við Brekastíg. Fóstri hans var Sigmar Guðmundsson. Kona Sigmars er Kolbrún Ósk Óskarsdóttir frá Hvassafelli í Vestmannaeyjum. Þau eiga þrjú björ, Gísla, Óskar Friðrik og Hörpu. Þau hjón bjuggu lengst af á Illugagötu 38 en fluttu í Kópavog árið 1998.

Sigmar var fiskiskipum sem háseti, vélstjóri og stýrimaður í 16 ár. Önnur 16 ár var hann sem stýrimaður á Herjólfi en lét þar af störfum árið 1992. Eftir það gerðist hann Umdæmisstjóraembætti Siglingastofnunar Ríkisins í Vestmannaeyjum og gegndi hann því starfi þar til hann flutti frá Eyjum. Hann starfar nú á vitasviði hjá Siglingastofnun Íslands.