Sigmar Þór Sveinbjörnsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigmar Þór Sveinbjörnsson fæddist 23. mars 1946 á Brekastíg 15a, Byggðarenda. Foreldrar hans voru Sveinbjörn Snæbjörnsson og Matthildur Þórunn Matthíasdóttir. Matthildur var berklaveik og ólst Sigmar af þeim sökum upp hjá ömmu sinni, Þórunni Júlíu Sveinsdóttur sem kennd var við Byggðarenda við Brekastíg. Fóstri hans var Sigmar Guðmundsson.

Kona Sigmars er Kolbrún Ósk Óskarsdóttir frá Hvassafelli í Vestmannaeyjum. Þau eiga þrjú börn, Gísla, Óskar Friðrik og Hörpu. Þau hjón bjuggu lengst af á Illugagötu 38 en fluttu til Kópavogs árið 1998.

Sigmar var á fiskiskipum sem háseti, vélstjóri og stýrimaður í 16 ár. Önnur 16 ár var hann sem stýrimaður á Herjólfi en lét þar af störfum árið 1992. Eftir það gerðist hann umdæmisstjóri hjá embætti Siglingastofnunar Ríkisins í Vestmannaeyjum og gegndi hann því starfi þar til hann flutti frá Eyjum í júni 1998. Hann starfar nú á skipaskoðunarsviði hjá Siglingastofnun Íslands.

Greinar