Leikfélag Vestmannaeyja

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júní 2006 kl. 08:19 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júní 2006 kl. 08:19 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Mynd frá uppfærslu hjá Leikfélagi Vestmannaeyja snemma á 20. öldinni.

Saga leiklistar frá 1852-1909

Árið 1852 var sýndur sjónleikur í Vestmannaeyjum og er talið að það hafi verið í fyrsta sinn sem leiksýning var í Vestmannaeyjum. Það sama ár greiða einhverjir leikendur ágóðann af leiksýningu til bæjarsjóðs. Ekki er vitað hverjir voru leikendur né hvaða verk var sýnt en ýmis er talið að leikritið hafi verið eftir Sigurð Pétursson skáld annars vegar en hins vegar að það hafi verið danskt og leikið á dönsku.

Árið 1852 flytur Séra Brynjólfur Jónsson til Vestmannaeyja og býr í Nöjsomhed ásamt konu sinni og ungri dóttur þeirra. Líklegt þykir að Brynjólfur hafi komið upp leiksýningum í samráði við fleiri aðila. Brynjólfur var menningarfrömuður og talið er fullvíst að hann hafi komið upp leikritinu "Narfi" eftir Sigurð Pétursson árið 1860-1861. Talið er að á meðal leikenda hafi verið Kristján Magnússon verslunarstjóri, Ingimundur Jónsson á Gjábakka, Gísli Lárusson og fleiri.

Árið 1864 var sett upp leikritið "Hrjólfur" og talið er að leikendur hafi verið þeir sömu og í Narfa. Árin 1886-1888 var leikritið Hrjólfur sýnt annað slagið í Kumbalda. Á meðal leikenda þá voru Árni Filippusson sem lék Hrjólf, Sigurður Sigurfinnsson, Gísli Lárusson, Einar Bjarnason og fleiri.

Þessar tvær sýningar, Narfi og Hrjólfur voru sýndar annað veifið fram til ársins 1890 eða 1891. Árið 1893 var "Tólfkóngavitið" leikið í Vestmannaeyjum og ári síðar "Hinn þriðji" sem var byggt upp á söngvum og tónlist. Á meðal þeirra sem stóðu að baki þessum sýningum voru Oddur Árnason, Guðlaugur Hansson Litlabæ, Guðrún Runólfsdóttir og Sigurbjörg R. Pétursdóttir. Var sagt að söngur þeirra Guðrúnar og Sigurbjargar hafi verið minnst lengi sem frábærlega góðum.

Um aldamótin 1900 var "Skugga-Sveinn" settur upp í Vestmannaeyjum. Þrátt fyrir að miðaverð hefði hækkað upp í 1,50 krónur sem þótti hátt miðaverð vakti það leikrit mikla ánægju á meðal bæjarbúa sem sumir sáu leikritið að minnsta kosti tvisvar. Á meðal leikenda voru Jón Filippusson Dalbæ, Jón Einarsson Garðsstöðum, Guðjón Guðjónsson Sjólyst, Sigríður Jónsdóttir Garðsstöðum og fleiri.

Á meðal annarra leikrita sem sett voru upp í kringum aldamótin 1900 í Vestmannaeyjum voru "Sálin hans Jóns míns", "Kaupmannsstrikið" og "Vesturfararnir". Árið 1909 var einnig sýnt í fyrsta skipti leikritið "Almannarómur" eftir Steinn Sigurðsson skólastjóra Barnaskólans sem var í fimm þáttum. Líklegt er talið að leikendur þar hafi verið Helgi Guðmundsson í Dalbæ, Hjálmrún Hjálmarsdóttir og Jón Jónsson í Hlíð. Steinn skólastjóri var þekktur rithöfundur bæði á bundið og óbundið mál. Hann samdi meðal annars stórt leikrit sem heitir "Stormur" og barnaleikrit sem nefnt var í Eyjum "Átján barna faðir í álfheimum" en hét annars "Skyggnu augun". Í því leikriti voru það börn úr barnaskólanum sem fóru með öll hlutverkin. Þau eldri voru í aðalhlutverkum en þau yngri komu fram sem álfar og dansandi vættir sem meðal annars sýndu dans í búningum sem voru sérstaklega gerðir fyrir þetta tilefni.

Saga leiklistar í Vestmannaeyjum frá þessum tíma er þó að mestu leyti glötuð með bókum og skjölum félagsins en þó má styðjast við heimildir meðal annars úr bæjarblöðum sem bæta skaðann að nokkru leyti.

Sýningarstaðir

Í upphafi var leikið í Kumbalda. Kumbaldi var eitt af verslunarhúsum Bryde verslunarinnar. Þótti sá staður af mörgum kaldur og leiðinlegur en það var þó alls ekki algilt. Það var á þeim tíma besta leikhúsið. Leiksviðið var rúmt og það var sett upp og tekið niður eftir þörfum. Sætun þóttu vera góð þrátt fyrir að vera baklaus. Það var einnig kostur við Kumbalda að þar gátu leikendur æft sig á leiksviðinu þegar það hentaði. Einnig var leikið í Gúttó en ýmsum þótti sá staður hlýlegri. Gúttó var reyndar oft upptekið vegna skemmtana og mannfagnaða en bið eftir leiksýningum var þó almennt ekki löng. Þar gátu um 140 manns setið. Leiksviðið í Gúttó þótti þó þröngt og var þröngt á bak við tjöldin. Helst gátu tveir ekki mæst þar án þess að faðmast eða renna sér mjög náið hvor meðfram öðrum.

Stofnun Leikfélags Vestmannaeyja

Eftir að hætt var að sýna "Ævintýri og gönguför" veturinn 1910 sem sýnt var fyrir Kvenfélagið Líkn kom leikurunum saman um að stofna leikfélag í Vestmannaeyjum. Þeir sem munu hafa staðið að þeirri hugmynd voru fyrst og fremst Halldór Gunnlaugsson læknir, A.L. Petersen og kona hans, Árni Gíslason, Valdimar Ottesen og fleiri. Voru undirtektirnar góðar og var leikfélagið formlega stofnað á stofnfundi þann 22. ágúst 1910. Fyrsta stjórn félagsins var skipuð eftirfarandi einstaklingum: Ágústa Eymundsdóttir var kosin formaður en hún var forstöðukona Kvenfélagsins Líknar, Aage L. Petersen símstöðvarstjóri sem kominn var gjaldkeri leikfélagsins, Árni Gíslason í Stakkagerði sem kosinn var ritari félagsins, Ólafur Ottesen verslunarmaður var kosinn endurskoðandi, Valdimar Ottesen kaupmaður var kosinn varaformaður og Guðjón Jósefsson Fagurlyst var kosinn meðstjórnandi. Í lögum félagsins sem stofnfundurinn samþykkti var samþykkt að nafn félagsins væri Leikfélag Vesmtnnaeyja og að tilgangur félagsins væri fyrst og fremst að efla leikmennt í Vestmannaeyjum. Þar segir jafnframt að inngöngu í félagið gætu eingöngu þeir karlar og konur fengið sem voru tilbúin til þess að skuldbinda sig til þess að leika þau hlutverk sem þar til skipuð nefnd úthlutaði þeim. Ennfremur var ákveðið að aðalfundir yrðu haldnir tvisvar á ári, ársgjald yrði 1 króna, ekki væri heimilt að leika utan félagsins nema með fundarsamþykki og ekki væri heimilt að segja sig úr félaginu á meðan viðkomandi hafði hlutverk á hendi í leiksýningu.

Saga leiklistar frá 1910-1929

Sjónleikir voru sýndir á Þjóðhátíðinni 1912 og 1913 þegar Stefanía Guðmundsdóttir leikkona kom til Vestmannaeyja. Lék hún sjónleikinn ásamt Ólafi Ottesen sem bar nafni "Hinrek og Pernella". Eftir að Leikfélag Vestmannaeyja var formlega stofnað komst starfsemin í fastari skorður en áður. Eftir stofnfundinn var farið í það að setja nýtt leikrit á svið og var leikritið "Ævintýrið" sýnt seint um haustið 1910 við ágætis aðsókn. Á fyrstu árum Leikfélags Vestmannaeyja tók leikfélagið fyrir mörg leikrit til meðferðar. Má þar nefna "Villidýrið" eftir E. Bögh og "Nei-ið" eftir Heiberg sem var danskur gamanleikur gjarnan nefndur "Hringjarinn frá Grensaa". Um miðjan desember 1913 setti leikfélagið upp leikritið "Malarakonan fagra" eftir Duveycier og "Sagt upp vistinni" og "Varaskeifan" Voru þessi verk undanfari stóra verkefnis félagsins, "Sherlock Holmes". Þetta var stærsta verkefni Leikfélagsins fram að þeim tíma og var ætíð nefnd "Týndi böggullinn". Sýningartími verksins var um 2,5 tími til 3 tímar með hléum og var það í þá daga lengsta verk sem leikfélagið hafði sett upp. Á meðal þeirra sem fóru með hlutverk í Sherlock Holmes voru Ólafur Ottesen sem lék Sherlock Holmes, Kristján Gíslason sem lék Dr. Watson, Þóra Vigfúsdóttir sem lék Alice Faulkner og Guðbjörg Gísladóttir sem lék Therese. Leikrit þetta var sýnt oftar en önnur á þessum tíma, að minnsta kosti 7 sinnum en margir segir 9 eða 10 sinnum.

Um þessar myndir starfaði Kvenfélagið Líkn mikið að leiklist til fjáröflunar fyrir verkefni og áhugamál sín. Setti kvenfélagið upp marga leikþætti til uppfyllingar á skemmtunum sínum. Til dæmis sýndu þær leikritið "Vinnukonu vantar" og fóru konur úr kvenfélaginu með öll aðalhlutverkin. Í helstu hlutverkum voru Matthildur Kjartansdóttir, Fríður Lárusdóttir á Búastöðum, Ólöf Jónsdóttir Byggðarholti og Guðný Guðjónsdóttir í Dal. Meðal annarra leikrita og leikþátta sem kvenfélagið setti upp var "Happadrættismiði nr. 101" þar sem Lára Guðjónsdóttir á Kirkjulandi fór með aðalhlutverkið, "Frúin sefur" eftir Holst og "Hinn setti eiginmaður" svo fáein séu nefnd.

Árið 1915 voru meðal annars sýnd verkin "Ærsladrósin", "Ungu hjónin", "Hermannahlettur" og "Best sem vitlausast". Árið 1916 lék leikfélagið verkið "Ímyndunarveikin" eftir Molier. Í því verki lék Guðbjörg Gísladóttir í síðasta sinn á leiksviði.

Helstu starfskraftar Leikfélags Vestmannaeyja 1910-1918


Heimildir

  • Árni Árnason. Blik ársrit Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. 1962.
  • Árni Árnason. Blik ársrit Vestmannaeyja. 1965.