Árni Gíslason (Stakkagerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Árni Gíslason)
Fara í flakk Fara í leit
Árni og Sigurbjörg með soninn Yngva Þóri.

Árni Gíslason fæddist í Stakkagerði 2. mars 1889 og lést 8. september 1957. Foreldrar hans voru Gísli Lárusson gullsmiður og Jóhanna Árnadóttir.

Þann 20. september 1913 kvæntist Árni Sigurbjörgu Sigurðardóttur.

Árni vann um skeið í verslun Gísla J. Johnsen í Edinborg. Síðar vann hann við bókhald kaupfélagsins Fram. Einnig var hann hafnargjaldkeri.

Bent er á grein um Árna í Blik 1965/Árni Gíslason frá Stakkagerði.

Myndir


Heimildir

  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár. II. bindi. Reykjavík: Vestmannaeyjabær, 1991.