Flakkarinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. júní 2006 kl. 09:00 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. júní 2006 kl. 09:00 eftir Margret (spjall | framlög) (bætti við texta)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Stór sprenging varð í aðalgígnum í upphafi marsmánaðar, sem varð til þess að stórt bjarg brotnaði úr norðurhlið eldkeilunnar sem hafði myndast. Þessi risavaxni hraunklettur flaut ofan á hrauninu til norðurs, og hlaut hann nafnið Flakkarinn. Hann ferðaðist um 200 metra á dag og var mikill ótti um að hann myndi fljóta út í höfn og loka höfninni þannig af. Hann stoppaði rétt austan við Kornhól fyrir tilskyldi hraunkælingarinnar, eftir að hafa brotnað í tvo parta þar fyrir sunnan. Hann stendur enn þar í dag, og er útsýnispallur þar hjá.