„Erlendur Eyjólfsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:KG-mannamyndir 2314.jpg|thumb|220px|Erlendur]]
[[Mynd:KG-mannamyndir 2314.jpg|thumb|220px|Erlendur]]


'''Erlendur Eyjólfsson''' fæddist á [[Búastaðir|Búastöðum]] í Vestmannaeyjum 23. nóvember 1919. Hann lést 28. desember 2001. Foreldrar hans voru [[Margrét Runólfsdóttir]] og [[Eyjólfur Gíslason]] skipstjóri. Ungur fór Erlendur í fóstur til [[Þórarinn Guðmundsson (Mandal)|Þórarins Guðmundssonar]] og [[Jónasína Runólfsdóttir|Jónasínu Runólfsdóttur]] í húsið [[Jaðar]] á [[Vestmannabraut]]. Var Erlendur alltaf kenndur við húsið sem ''Elli á Jaðri''.  
'''Erlendur Eyjólfsson''' fæddist á [[Búastaðir|Búastöðum]] í Vestmannaeyjum 23. nóvember 1919. Hann lést 28. desember 2001. Foreldrar hans voru [[Margrét Runólfsdóttir (Jaðri)|Margrét Runólfsdóttir]] og [[Eyjólfur Gíslason]] skipstjóri. Ungur fór Erlendur í fóstur til [[Þórarinn Guðmundsson (Mandal)|Þórarins Guðmundssonar]] og [[Jónasína Runólfsdóttir|Jónasínu Runólfsdóttur]] í húsið [[Jaðar]] á [[Vestmannabraut]]. Var Erlendur alltaf kenndur við húsið sem ''Elli á Jaðri''.  


Erlendur kvæntist árið 1946 [[Helga Åberg |Helgu Åberg]], dóttur Nönnu Åberg saumakonu við Þjóðleikhúsið og Henrys Ágústs Åbergs, rafvirkjameistara í Reykjavík. Erlendur og Helga reistu sér hús á [[Brimhólabraut]] 7 og bjuggu þar fram að [[Heimaeyjargosið|gosinu]] árið 1973. Þau eignuðust þrjú börn, [[Henry Ágúst Erlendsson|Henry Ágúst]] bifreiðastjóra, Jónasínu Þóru sem lést rúmlega mánaðargömul og Jónasínu Þóru.  
Erlendur kvæntist árið 1946 [[Helga Åberg |Helgu Åberg]], dóttur Nönnu Åberg saumakonu við Þjóðleikhúsið og Henrys Ágústs Åbergs, rafvirkjameistara í Reykjavík. Erlendur og Helga reistu sér hús á [[Brimhólabraut]] 7 og bjuggu þar fram að [[Heimaeyjargosið|gosinu]] árið 1973. Þau eignuðust þrjú börn, [[Henry Ágúst Erlendsson|Henry Ágúst]] bifreiðastjóra, Jónasínu Þóru sem lést rúmlega mánaðargömul og Jónasínu Þóru.  

Núverandi breyting frá og með 29. september 2023 kl. 11:46

Erlendur

Erlendur Eyjólfsson fæddist á Búastöðum í Vestmannaeyjum 23. nóvember 1919. Hann lést 28. desember 2001. Foreldrar hans voru Margrét Runólfsdóttir og Eyjólfur Gíslason skipstjóri. Ungur fór Erlendur í fóstur til Þórarins Guðmundssonar og Jónasínu Runólfsdóttur í húsið Jaðar á Vestmannabraut. Var Erlendur alltaf kenndur við húsið sem Elli á Jaðri.

Erlendur kvæntist árið 1946 Helgu Åberg, dóttur Nönnu Åberg saumakonu við Þjóðleikhúsið og Henrys Ágústs Åbergs, rafvirkjameistara í Reykjavík. Erlendur og Helga reistu sér hús á Brimhólabraut 7 og bjuggu þar fram að gosinu árið 1973. Þau eignuðust þrjú börn, Henry Ágúst bifreiðastjóra, Jónasínu Þóru sem lést rúmlega mánaðargömul og Jónasínu Þóru.

Erlendur lauk sveinsprófi í eldsmíði undir handleiðslu Sigurðar Sigurðssonar frá Hæli árið 1945 og varð meistari í greininni 1952. Erlendur hóf ungur störf í Vélsmiðjunni Magna, en árið 1959 stofnaði Erlendur ásamt fimm starfsfélögum sínum í Magna, vélsmiðjuna Völund, sem átti eftir að vaxa og verða ásamt Magna annað stórfyrirtækið í Vestmannaeyjum í vélsmíði og viðgerðum á vélum og tækjum í vélbátaflota og fiskiðjuverum Eyjanna. Þar vann hann til ársins 1975 er þau hjónin fluttu til Reykjavíkur.

Erlendur var félagi í Lúðrasveit Vestmannaeyja og var formaður þar 1968-1975. Árið 1967 var hann einn af stofnendum Kiwanisklúbbsins Helgafells í Eyjum og starfaði alla tíð af lífi og sál í Kiwanishreyfingunni. Árið 1972 varð hann forseti klúbbsins.


Heimildir

  • Morgunblaðið. Minningargreinar um Erlend Eyjólfsson, 5. janúar 2002.