Erlendur Eyjólfsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Erlendur

Erlendur Eyjólfsson fæddist á Búastöðum í Vestmannaeyjum 23. nóvember 1919. Hann lést 28. desember 2001. Foreldrar hans voru Margrét Runólfsdóttir og Eyjólfur Gíslason skipstjóri. Ungur fór Erlendur í fóstur til Þórarins Guðmundssonar og Jónasínu Runólfsdóttur í húsið Jaðar á Vestmannabraut. Var Erlendur alltaf kenndur við húsið sem Elli á Jaðri.

Erlendur kvæntist árið 1946 Helgu Åberg, dóttur Nönnu Åberg saumakonu við Þjóðleikhúsið og Henrys Ágústs Åbergs, rafvirkjameistara í Reykjavík. Erlendur og Helga reistu sér hús á Brimhólabraut 7 og bjuggu þar fram að gosinu árið 1973. Þau eignuðust þrjú börn, Henry Ágúst bifreiðastjóra, Jónasínu Þóru sem lést rúmlega mánaðargömul og Jónasínu Þóru.

Erlendur lauk sveinsprófi í eldsmíði undir handleiðslu Sigurðar Sigurðssonar frá Hæli árið 1945 og varð meistari í greininni 1952. Erlendur hóf ungur störf í Vélsmiðjunni Magna, en árið 1959 stofnaði Erlendur ásamt fimm starfsfélögum sínum í Magna, vélsmiðjuna Völund, sem átti eftir að vaxa og verða ásamt Magna annað stórfyrirtækið í Vestmannaeyjum í vélsmíði og viðgerðum á vélum og tækjum í vélbátaflota og fiskiðjuverum Eyjanna. Þar vann hann til ársins 1975 er þau hjónin fluttu til Reykjavíkur.

Erlendur var félagi í Lúðrasveit Vestmannaeyja og var formaður þar 1968-1975. Árið 1967 var hann einn af stofnendum Kiwanisklúbbsins Helgafells í Eyjum og starfaði alla tíð af lífi og sál í Kiwanishreyfingunni. Árið 1972 varð hann forseti klúbbsins.


Heimildir

  • Morgunblaðið. Minningargreinar um Erlend Eyjólfsson, 5. janúar 2002.