„Valur Smári Geirsson“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: 250px|thumb|''Valur Smári Geirsson. '''Valur ''Smári'' Geirsson''' sjómaður fæddist 18. september 1957 í Rvk og drukknaði 11. mars 1984.<br> Foreldrar hans voru Geir Grétar Pétursson, sjómaður, útgerðarmaður, fiskverkandi, verkamaður, f. 14. apríl 1937 i Stóru-Hildisey í A.-Landeyjum, d. 1. september 2015, og kona hans Kristín Anna Baldvinsdóttir, húsfreyja, verkakona, dagmóðir, f. 20. ágúst 1938 í...)
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 10. maí 2024 kl. 20:58

Valur Smári Geirsson.

Valur Smári Geirsson sjómaður fæddist 18. september 1957 í Rvk og drukknaði 11. mars 1984.
Foreldrar hans voru Geir Grétar Pétursson, sjómaður, útgerðarmaður, fiskverkandi, verkamaður, f. 14. apríl 1937 i Stóru-Hildisey í A.-Landeyjum, d. 1. september 2015, og kona hans Kristín Anna Baldvinsdóttir, húsfreyja, verkakona, dagmóðir, f. 20. ágúst 1938 í Rvk, d. 26. ágúst 2009

Barn Kristínar með Ragnari Jósep Jónssyni:
1. Sveinn Guðfinnur Ragnarsson verkamaður, f. 4. janúar 1956, d. 26. febrúar 2003. Barnsmæður hans Jóhanna Ósk Kristjánsdóttir, Sjöfn Garðarsdóttir og Sigríður Bergdís Magnúsdóttir.
Börn Kristínar og Geirs Grétars:
2. Valur Smári Geirsson sjómaður, f. 18. september 1957, fórst með Hellisey VE 11. mars 1984. Sambúðarkona hans Linda Sigurborg Aðalbjörnsdóttir.
3. Grétar Pétur Geirsson bókari, f. 24. september 1958. Barnamóðir hans Guðrún Guðfinnsdóttir. Fyrrum sambúðarkona hans Laufey Þ. Ólafsdóttir. Sambúðarkona Brynhildur Fjölnisdóttir.
4. Steindór Guðberg Geirsson sjómaður, f. 26. desember 1961, drukknaði, er hann tók út af togaranum Klakki 1. október 1978.
5. Heimir Freyr Geirsson sjómaður, f. 1. júní 1963. Fyrrum sambúðarkona hans Eygló Guðmundsdóttir. Sambúðarkona hans Margrét Þ. Sverrisdóttir.
6. Sævar Helgi Geirsson umsjónarmaður, f. 18. október 1966. Fyrrum sambúðarkona Jóhanna B. Halldórsdóttir.
7. Anna Lea Geirsdóttir starfsmaður á sjúkrahúsi, f. 13. febrúar 1980. Barnsfaðir hennar Alex Þorsteinsson.

Valur Smári var sjómaður, oft matsveinn á bátum og togurum.
Þau Linda hófu sambúð 1975, eignuðust tvö börn.
Valur Smári fórst með Hellisey VE 1984.

I. Sambúðarkona Vals Smára er Linda Sigurborg Aðalbjörnsdóttir, húsfreyja, nagla- og förðunarfræðingur, f. 30. ágúst 1959.
Börn þeirra:
1. Aðalbjörn Þorgeir Valsson, f. 13. janúar 1977.
2. Anna Dóra Valsdóttir, f. 4. september 1981.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.