Áróra Guðrún Friðriksdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Áróra Guðrún Friðriksdóttir húsfreyja, ferðamálafræðingur fæddist 18. apríl 1953 að Hásteinsvegi 7.
Foreldrar hennar voru Anna Jóhanna Oddgeirs húsfreyja, sjúkraliði, f. 30. október 1932 á Sandi við Strandveg, og Friðrik Ágúst Hjörleifsson frá Skálholti, sjómaður, útgerðarmaður, sendibílstjóri, f. 1. nóvember 1930, d. 7. október 2014.

Börn Önnu og Friðriks Ágústs:
1. Áróra Guðrún Friðriksdóttir húsfreyja, umboðsmaður, ferðamálafræðingur, f. 18. apríl 1953 að Hásteinsvegi 7.
Maður hennar er Bjarni Sighvatsson skrifstofumaður, f. 19. júlí 1947 á Aðalbóli.
2. Þóra Margrét Friðriksdóttir húsfreyja, fiskverkakona, f. 14. febrúar 1955 að Hásteinsvegi 7, d. 26. febrúar 1998. Maður hennar var Heiðar Ágúst Borgþórsson vélstjóri, f. 3. apríl 1952, ættaður frá Kiðjabergi og Stóra-Hvammi. Þau skildu 1997.
3. Hjörleifur Arnar Friðriksson, f. 5. júlí 1956 að Landgötu 22, d. 13. september 1956.
4. Hjörleifur Arnar Friðriksson sjómaður í Eyjum, f. 2. mars 1958 í Eyjum. Kona hans er Auðbjörg Sigurþórsdóttir frá Eskifirði, f. þar 29. nóvember 1960.
5. Jón Rúnar Friðriksson sjómaður í Reykjavík, f. 17. júlí 1960 í Eyjum.
6. Friðrik Þór Friðriksson sjómaður, málari í Reykjavík, f. 24. nóvember 1962 í Eyjum.

Áróra var með foreldrum sínum í æsku.
Hún varð 4. bekkjar gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1970, fór í lýðháskóla í Danmörku 1971-1972. Hún nam ferðamálafræði við skólann á Hólum í Hjaltadal og stundaði verklegt nám í Skotlandi, var í skóla í leiðsögu ferðamanna í Reykjavík og fararstjórn erlendis.
Áróra vann við fiskiðnað á unglingsaldri, bjó hjá foreldrum sínum í Grænuhlíð 7 við Gosið 1973.
Þau Bjarni fluttu til Eyja 1974 og stofnuðu raftækjaverslunina Kjarna með Halldóri Inga Guðmundssyni og Önnu Þóru Einarsdóttur og ráku í 7 ár, frá 1974-1981, er þau seldu hana.
Áróra varð umboðsmaður Samvinnutrygginga í Eyjum í 11 ár, umboðsmaður DV í 20 ár, vann í Sparisjóðnum , hjá Olís og Pósti og síma.
Hún vatt sér í stjórnmál í Eyjum, var varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður umhverfisnefndar og ferðamálafulltrúi í Eyjum í 6 ár.
Áróra var einn af stofnendum Skógræktarfélags Vestmannaeyja. Hún koma á hreinsunardegi í Eyjum ásamt fleiri, barðist fyrir verndun Helgafells, verndun Víkurinnar við Stórhöfða og fleiri umhverfisverndarmálum. Hlaðin stytta við Urðavita ber nafnið Áróra eftir henni.
Eftir flutning til Reykjavíkur vann Áróra hjá heildverslun, vann í ferðamálum hjá ITA, Eldingu, Farfuglum og hjá fleiri ferðatengdum aðilum, og síðan varð hún móttökuritari hjá Morgunblaðinu.
Þau Bjarni giftu sig 1974 eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Kirkjubæjarbraut 4, búa á Esjugrund 33 í Reykjavík.

I. Maður Áróru Guðrúnar (15. júní 1974), er Bjarni Sighvatsson útvarpsvirki, skrifstofumaður, f. 19. júlí 1949 á Aðalbóli, ættaður þaðan.
Börn þeirra:
1. Sighvatur Bjarnason flugstjóri, f. 7. september 1975. Barnsmóðir hans Þórunn Jónsdóttir.
2. Ágúst Bjarnason sjómaður, f. 9. maí 1978, d. 10. desember 2006. Hann var ókvæntur og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.