Árni Hákonarson (Stóra-Gerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Árni Hákonarson bóndi í Stóra-Gerði fæddist 1741 og drukknaði 16. febrúar 1793.
Faðir hans var Hákon Sigurðsson bóndi í Varmahlíð u. Eyjafjöllum 1715, en móðir hans er ókunn.

Árni fórst 16. febrúar 1793 ásamt sex öðrum.
Úr Djáknaannálum 1793: „10 manna skiptapi í Vestmannaeyjum, en 6 náðust lífs.“

I. Fyrri kona Árna var Guðrún Vigfúsdóttir húsfreyja, f. 1742, d. 9. júní 1790.
Börn hér:
1. Jón Árnason bóndi á Voðmúlastöðum í A-Landeyjum, drukknaði við Eyjar 22. apríl 1815.
2. Ingveldur Árnadóttir í Ólafshúsum, f. 1780, d. þar 22. júlí 1823

II. Barnsmóðir Árna var Ragnhildur Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 1760, d. 24. júlí 1843, þá kona Bjarna Sigvaldasonar á Vesturhúsum, en hann var þá fangi í Reykjavík.
Börn þeirra hér:
3. Jón Árnason, f. 6. maí 1792, tvíburi, d. 9. maí 1792 úr ginklofa.
4. Ingibjörg Árnadóttir, f. 6. maí 1792, tvíburi, d. 9. maí 1792 úr ginklofa.

III. Síðari kona Árna, (6. maí 1792), var Ingigerður Árnadóttir húsfreyja og ljósmóðir, f. um 1764 að Lækjarbakka í Mýrdal, d. 20. maí 1833 í Nýjabæ í Eyjum.
Barn þeirra var
5. Þorbjörg Árnadóttir, f. 14. apríl 1793, d. 20. s. mán. úr ginklofa.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Annálar 1400-1800 (Annales Islandici Posteriorum Saeculorum), bók VI., Djáknaannálar. Hið íslezka bókmenntafélag 1987.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Magnús Haraldsson.
  • Prestþjónustubækur.
  • Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum. Jóhann Gunnar Ólafsson. 2. útgáfa. Skuggsjá 1966.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.