Ágústa Óskarsdóttir (Sunnuhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Ágústa Óskarsdóttir)
Fara í flakk Fara í leit

Ágústa Óskarsdóttir, frá Sunnuhól, talsímakona fæddist 3. febrúar 1930 á Hól.
Foreldrar hennar voru Óskar Kárason, skipstjóramenntaður, múrarameistari, landmælingamaður, f. 9. ágúst 1905, d. 2. maí 1970, og kona hans Anna Jesdóttir, húsfreyja, tónlistarmaður, f. 2. desember 1902, d. 18. september 1994.

Börn Önnu og Óskars:
1. Ágústa talsímakona, f. 3. febrúar 1930.
2. Kári múrarameistari, f. 25. júlí 1931.
3. Þórir flugstjóri, f. 19. september 1934.

Ágústa varð gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum í Eyjum 1947.
Hún var talsímakona á Símstöðinni, flutti með móður sinni til Rvk 1971.
Hún er ógift og barnlaus.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.