Viska

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

VISKA er Fræðslu- og símenntunarmiðstöð og var stofnuð í janúar árið 2003.

Markmið með stofnun VISKU – Fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar í Vestmannaeyjum er að:

  • efla menntun í Vestmannaeyjum með því a standa fyrir fræðslustarfsemi sem ekki heyrir undir námsskrárbundið nám á grunn- og framhaldsskólastigi, nema sérstaklega verði um það samið.
  • hafa forgöngu um fræðslu og fjarkennslu á sem flestum sviðum
  • miðla framboði á fræðslu og fjarkennslu til almennings og atvinnulífs í Vestmannaeyjum.
  • vinna í samstarfi við aðra aðila í landinu sem sinna símenntun, endurmenntun og menntun á háskólastigi
  • vera í fararbroddi að nýtingu á bestu fáanlegri fjarkennslutækni hverju sinni.


Háskólinn á Akureyri og Háskóli Íslands hafa verið í samstarfi við Visku og Rannsóknasetur Háskóla Íslands um fjarnám hér í Eyjum. Skólarnir tveir nýta sér myndfundabúnaði og eru kennslustundir sendar beint út í gegnum þá.


Tæknilegar upplýsingar

  • Heimilisfang:
Strandvegur 50
900 Vestmannaeyjar
  • Sími:
481-1950
661-1950
  • Fax:
481-2669
  • Vefsíða:

Heimasíða Visku

  • Netfang:
viska@eyjar.is
  • Forstöðumaður:
Valgerður Guðjónsdóttir