Unnur Ólafsdóttir (Hásteinsvegi 8)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Unnur Ólafsdóttir húsfeyja, forstöðumaður fæddist 24. júní 1956.
Foreldrar hennar voru Ólafur Björn Þorsteinsson frá Rvk, verslunarmaður, f. þar 5. febrúar 1915, d. 25. október 1993, og kona hans Guðmunda Sigurðardóttir frá Litlalandi við Kitkjuveg 59, húsfreyja, trúboði, f. 30. mars 1916, d. 5. febrúar 1992.

Börn Guðmundu og Ólafs:
1. Svanlaug María Ólafsdóttir húsfreyja, leikskólastarfsmaður, f. 24. febrúar 1938. Maður hennar er Sigurður Ásgeirsson.
2. Sigurður Halldór Ólafsson bifreiðastjóri, f. 6. febrúar 1939, d. 16. mars 2007. Kona hans var Kristín Þorvarðardóttir.
3. Ingibjörg Ólafsdóttir húsfreyja, f. 25. ágúst 1941. Maður hennar var Vilhjálmur Hendriksson.
4. Kristín Dagbjört Ólafsdóttir húsfreyja, f. 11. ágúst 1945. Maður hennar er Sigurður Guðjónsson.
5. Ester Ólafsdóttir húsfreyja, f. 17. janúar 1951. Maður hennar er Karl J. Steingrímsson.
6. Anna Ólafsdóttir húsfreyja, athafnakona, f. 17. desember 1953. Maður hennar er Arnar H. Gestsson.
7. Unnur Ólafsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 24. júní 1956. Maður hennar er Sigmundur Gísli Einarsson.
8. Hanna Ólafsdóttir húsfreyja, f. 22. janúar 1959. Maður hennar var Matthías Ægisson.

Unnur var með foreldrum sínum við Njálsgötu í Rvk.
Hún vinnur með Sigurmundi að ferðamálum í Eyjum. Þau reka fyrirtækið Viking Tours og kaffihúsið Café Kró. Þau sigla með ferðamenn kringum Heimaey og út að Surtsey og í rútum um Eyjuna.
Þau Sigurmundur giftu sig, eignuðust fimm börn. Þau búa við Hásteinsveg 8.

ctr
Unnur Ólafsdóttir, Sigurmundur Gísli Einarsson og börn.

I. Maður Unnar er Sigurmundur Gísli Einarsson forstöðumaður, skipstjóri, f. 26. september 1957.
Börn þeirra:
1. Einar Sigurmundsson, f. 26. desember 1978.
2. Unnar Gísli Sigurmunsson, f. 5. september 1982.
3. Guðný Sigurmundsdóttir yngri, f. 8. maí 1987.
4. Ólafur Rúnar Sigurmundsson, f. 13. september 1989.
5. Guðmundur Óskar Sigurmundsson, f. 21. janúar 1992.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.