Tyrkneski hnappurinn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Snemma á 20. öld fannst steyptur treyjuhnappur í kálgarði í námunda við Strandveginn, ekki svo langt frá Mandal. Hnappurinn fannst þegar hugað var að garðinum. Á honum er hálfmáni og stjarna.

Sumir telja að til stimpinga hafi komið á milli Eyjamanna og ræningjanna í Tyrkjaráninu 1627. Eyjamaður hafi rifið hnappinn af treyju ræningjans og goldið fyrir það með lífi sínu. Ef til vill hefur viðkomandi kosið það frekar en þrældóm í ánauð suður í Afríku.

Jón Stefánsson í Mandal gaf Byggðasafninu í Vestmannaeyjum hnappinn og er hann talinn einn mesti sögugripur sem safnið á í fórum sínum.


Heimildir

  • Blik, ársrit Vestmanneyja. 1967.