Sveinbjörn Þorleifsson (Brekkuhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sveinbjörn Þorleifsson í Brekkuhús, bóndi í Ey í V-Landeyjum, fæddist 6. janúar 1837 og lést 5. ágúst 1911.
Faðir hans var Þorleifur bóndi í Ey, f. 5. júní 1797, d. 23. janúar 1874, Árnason bónda á Efri-Þverá í Fljótshlíð 1801, húsmanns á Kirkjulæk þar 1835, f. 1771 í Fljótshlíð, d. 13. júlí 1843, Arnbjarnarsonar bónda á Kvoslæk í Fljótshlíð, f. 1726, d. 29. júlí 1798, Eyjólfssonar, og konu Arnbjarnar, Sigríðar húsfreyju, f. 1734, d. 17. maí 1814, Ólafsdóttur. Þau Sigríður og Arnbjörn eru ættforeldrar Kvoslækjarættar.
Móðir Þorleifs og kona Árna á Efri-Þverá var Guðrún húsfreyja, f. 1770, d. 11. október 1839, Sveinbjarnardóttir bónda á Kirkjulæk, f. 1741, d. 8. janúar 1824, Þorleifssonar, og konu Sveinbjarnar, Hildar húsfreyju, f. 1729, d. 15. mars 1819, Pálsdóttur.

Móðir Sveinbjarnar í Brekkuhúsi og kona Þorleifs í Ey var Sigrún húsfreyja, f. 6. nóvember 1800 í Fljótshlíð, d. þar 24. janúar 1866, Arngrímsdóttir bónda á Stóra-Moshvoli í Stórólfshvolssókn, Velli í Breiðabólsstaðarsókn og Langekru á Rangárvöllum, að lokum húsmanns í Keflavík, f. 1764 á Árgilsstöðum í Hvolhreppi, skírður 10. október það ár, d. 25. mars 1839 í Keflavík, Guttormssonar bónda á Árgilsstöðum, f. 1726, d. 15. mars 1792, Bergsteinssonar, og konu Guttorms, Sigrúnar húsfreyju, f. 1722, d. 15. mars 1800, Snorradóttur.
Móðir Sigrúnar húsfreyju í Ey og fyrri kona Arngríms Guttormssonar var Halldóra húsfreyja, f. 1768 á Árgilsstöðum, d. 30. janúar 1820 á Rangárvöllum, Sigurðardóttir bónda á Árgilsstöðum , f. 1727, d. 17. júlí 1796, Sigurðssonar, og konu Sigurðar á Árgilsstöðum, Þuríðar húsfreyju, f. 1741 á Árgilsstöðum, d. 30. ágúst 1818 í sókninni.

Sveinbjörn Þorleifsson var niðursetningur á Flókastöðum í Fljótshlíð 1840, 1845 og 1850, vinnumaður á Árgilsstöðum í Hvolhreppi 1855 og 1860, og þar var þá Halldóra Jónsdóttir vinnukona.
Þau Halldóra voru bændahjón í Ey í V-Landeyjum 1870 með synina Sigurð og Arngrím hjá sér, voru búandi þar 1880 og Guðrún og Sigrún höfðu bæst í barnahópinn. Þar voru þau enn 1890 með dæturnar.
Þau fluttust til Eyja 1899, Sveinbjörn til Sigurðar, Halldóra til Arngríms.
Sveinbjörn var hjá Sigurði syni sínum á Fögruvöllum 1901, síðar (1910) hjá honum í Brekkuhúsi.
Hann lést 1911.

Kona Sveinbjarnar Þorleifssonar í Brekkuhúsi var Halldóra Jónsdóttir húsfreyja, f. 13. september 1833, d. 13. maí 1903.
Börn þeirra voru:
1. Sigurður Sveinbjörnsson bóndi í Brekkuhúsi, f. 20. júní 1865, d. 11. júní 1933.
2. Arngrímur Sveinbjörnsson bóndi á Kirkjubæ, f. 17. júní 1868, d. 11. febrúar 1937.
3. Guðrún Sveinbjörnsdóttir, f. 1874. Hún var niðursetningur á Eystri-Hóli í V-Landeyjum 1901.
4. Sigrún Sveinbjörnsdóttir húsfreyja í Eystra-Fróðholti á Rangárvöllum, f. 2. nóvember 1878, d. 23. apríl 1948.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.