Strandvegur 49

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Endurvinnslan

Húsið sem stendur við Strandveg 49 var byggt árið 1929. Fyrr á tímum var þar frystihús SÍS og um tíma var þar Timbursala Kaupfélags Ve. Guðni Grímsson rak um tíma dekkjaverkstæði í húsinu og Guðni Benediktsson Vélsmiðju um tíma. Einnig var um tíma pípulagningarverkstæði, Nippill og bílaþvottur. Í dag er Endurvinnslan þar til húsa.


Heimildir

  • Strandvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.