Stefán Pétur Pétursson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Stefán Pétur Pétursson.

Stefán Pétur Pétursson sjómaður fæddist 13. nóvember 1915 (pr.þj.bók 27. október 1915) á Hallormsstað í Vallahreppi, S.-Múl. og lést 24. desember 1982.
Foreldrar hans voru Pétur Pétursson vinnumaður, póstur, múrari, f. 1876, d. 19. mars 1937, og kona hans Una Stefanía Stefánsdóttir húsfreyja, síðar í Neskaupstað, f. 25. janúar 1882, d. 17. nóvember 1950.

Stefán var með foreldrum sínum, í Garðshorni í Neshreppi 1920, var vinnumaður í Fjarðarkoti í Mjóafirði 1930.
Þau Halla giftu sig 1937, eignuðust fjögur börn, en misstu eitt þeirra á fyrsta aldursári þess. Þau bjuggu í fyrstu á Lundi, í Miðey 1937, fluttu til Neskaupstaðar 1939 og bjuggu þar síðan, síðast á Þiljuvöllum 31.
Stefán lést 1982 og Halla 1997.

I. Kona Stefáns, (28. maí 1937), var Halla Bergsteina Guðlaugsdóttir frá Odda við Vestmannabraut 63, húsfreyja í Neskaupstað, f. 5. nóvember 1918, d. 17. ágúst 1997.
Börn þeirra:
1. Guðlaugur Stefánsson kennari, f. 12. júlí 1936 á Lundi, d. 12. febrúar 2023.
2. Halla Valgerður Stefánsdóttir, f. 10. október 1937 í Miðey við Heimagötu 33.
3. Stúlka, f. 2. júní 1942 í Neskaupstað, d. 15. október 1942.
4. Stefanía Una Stefánsdóttir, f. 7. janúar 1947 á Brennu í Neskaupstað.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.