Stefán Erlendsson (netagerðarmaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Stefán Erlendsson.

Stefán Erlendsson netagerðarmaður, verkstjóri fæddist 5. september 1965 og lést 31. desember 2000.
Foreldrar hans voru Erlendur Stefánsson skósmiður, netagerðarmeistari, bóndi, f. 20. febrúar 1920, d. 12. ágúst 2007, og kona hans Guðfinna Kjartanía Ólafsdóttir frá Fagradal í Mýrdal, húsfreyja, f. 16. september 1923, d. 9. maí 2015.

Börn Guðfinnu og Inga:
1. Sigrún Ósk Ingadóttir húsfreyja, hárgreiðslumeistari, fyrrverandi framleiðslustjóri. Hún rekur nú fyrirtækið Kerfi í Hafnarfirði, f. 28. nóvember 1948. Maður hennar er Guðmundur Sigurðsson.
2. Ingi Stefán Ingason kennslustjóri, skipstjóri, leiðsögumaður, f. 15. maí 1950. Kona hans er Katrín Þ. Andrésdóttir.
Börn Guðfinnu og Erlendar:
3. Stefán Erlendsson netagerðarmaður, f. 5. september 1965, d. 31. desember 2000.
4. Ólafur Erlendsson netagerðarmaður, vinnur í Hampiðjunni, f. 5. september 1965. Kona hans er Gunnhildur V. Kjartansdóttir.
5. Kjartan Erlendsson verkamaður í Danmörku, f. 23. janúar 1967. Kona hans er Rikke Kiil Erlendsson.

Stefán varð stúdent í Framhaldsskólanum í Eyjum 1985, lærði netagerð hjá Netagerðinni Ingólfi.
Hann vann í Fiskiðjunni, en síðan hjá Netagerðinni Ingólfi til dauðadags, var verkstjóri síðustu árin.
Hann bjó við Hásteinsveg 50 1986.
Stefán var formaður Veiðifélags Elliðaeyjar og ritari knattspyrnuráðs ÍBV, er hann lést.
Þau Laufey hófu sambúð, en slitu eftir tvö ár.

I. Sambúðarkona Stefáns í tvö ár er Laufey Böðvarsdóttir, f. 21. júlí 1967. Foreldrar hennar Böðvar Kristjánsson, f. 26. nóvember 1925, d. 17. október 2015, og Guðlaug Þorbergsdóttir, f. 7. desember 1935.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.