Sonja Hilmarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sonja Hilmarsdóttir húsfreyja fæddist 24. apríl 1954.
Foreldrar hennar voru Gabríel Kristmann Hilmar Jensson frá Minnigarði í Núpssókn í Ísafjarðarsýslu, sjómaður, starfsmaður hjá Fjöðrinni hf. í Rvk, f. 17. apríl 1924, d. 16. febrúar 1991, og kona hans Agnes Auðunsdóttir frá Ásgarði í Prestbakkasókn, V-Skaft., húsfreyja, hreingerningakona, f. 21. janúar 1926, d. 28. mars 2007.

Sonja lauk landsprófi í Vogaskóla 1970, var í MA í tvö ár og MT í eitt ár, lauk verslunarnámi í Viðskipta- og tölvuskólanum í Rvk.
Hún vann skrifstofustörf, var m.a. ritari í Ráðhúsinu hjá Páls Zóphóníassonar bæjarstjóra og skrifstofumaður á Landspítalanum.
Hún flutti til Eyja um áramót 1975-1976. Þau Ómar giftu sig 1977, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu við Boðaslóð 23, byggðu Smáragötu 20 og bjuggu þar, búa nú í Mosfellsbæ.

I. Maður Sonju, (2. júlí 1977), er Ómar Kristmannsson, sjómaður, stýrimaður, skipstjóri, útgerðarmaður, skrifstofumaður, f. 5. október 1949.
Börn þeirra:
1. Kristmann Ómarsson, rafeindavirki, starfsmaður Íslandsbanka, f. 27. nóvember 1976. Kona hans Vigdís Jensdóttir.
2. Hilmar Ómarsson, orkuverkfræðingur, f. 13. júlí 1978. Hann vinnur hjá COWI í Danmörku. Fyrrum sambúðarkona hans Ann Edvardsen. Fyrrum sambúðarkona Elísabet Viðarsdóttir.
3. Sævar Ómarsson, sjúkraþjálfari, f. 9. júní 1983. Fyrrum sambúðarkona hans Anna Sigríður Sigurjónsdóttir.
4. Bjarki Ómarsson verkfræðingur hjá Faxaflóahöfnum, f. 5. ágúst 1988. Kona hans Þórdís Kristjánsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Hildur og Ómar.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.