Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2010/Starf vélstjórnarbrautar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
GÍSLI SIG. EIRÍKSSON SKRIFAR


Starf velstjórnarbrautar FÍV 2009 - 2010



Vorönnin 2009 hófst 5. jan í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum. Við nám á vélstjórnarbraut voru 13 nemendur, misjafnlega langt komnir í náminu, auk þess nemendur frá Grunnskólanum sem voru í valáföngum í málmsmíði. Til að öðlast atvinnuréttindi og geta starfað til sjós þurfa vélstjórar eins og aðrir sjómenn að hafa lokið Slysavarnaskólanum og í gegnum tíðina hafa nemendur sótt þau námskeið þegar skip Slysavarnaskólans kom hér til Eyja. Sæbjörgin er nú hætt að koma hingað, en í staðinn var samið við þá slysavarnamenn um að þeir sendu kennara til Eyja þannig að hægt væri að taka bóklega hlutann hér, síðan fóru nemendur til Reykjavíkur þar sem verklegi þátturinn var tekinn. Námi í vélstjórn hefur verið breytt og það flokkað öðruvísi. Þeir sem luku námi úr II. stigi samkvæmt eldra kerfi auk starfstíma, öðluðust 750 kW réttindi. Fjórir nemendur luku á vorönninni námi II. stigs samkvæmt eldra kerfi, allt úrvals nemendur. Skipalyftan veitir þeim nemanda sem hefur bestan árangur í málmsmíði vandað stafrænt rennimál, að þessu sinni kom það í hlut Sigurðar Einars Gíslasonar sem ennfremur hlaut vandað úr sem Vélstjórafélagið veitir fyrir bestan árangur í vélstjórnargreinum. Geisli gefur viðurkenningu fyrir bestan árangur í rafmagnsfræðigreinum. Að þessu sinni kom það í hlut Björgvins Hlynssonar að veita þeim viðurtöku. Viljum við þakka Skipalyftunni, Geisla og Vélstórafélaginu þann hlýhug og skilning sem þeir sýna bæði nemendum og skóla í verki.
Haustönnin hófst þann 21. ágúst. Kennarar við vélstjórnarbrautina eru þeir sömu, Gísli Sig. Eiríks og Þorbjörn Númason auk stundakennara í einstökum faggreinum. Nemendur við vélstjórnarbrautina eru 21 þar af nokkrir starfandi sjómenn sem vilja auka starfsmöguleika sína. Þeir taka einstaka áfanga í gegnum námsskjá þar sem þeir sækja og skila verkefnum, þeir eru líka sérstaklega duglegir við að mæta í kennslustundir bæði verklegar og bóklegar þegar þeir eru í landi eða í reglubundnum fríum. Eins og undanfarin ár var farið í vettvangsferðir í fyrirtæki og stofnanir til að skoða tæki og tól í fullri vinnslu, meðal annars var farið í Lóðsinn þar sem vél og búnaður var skoðaður og á Rafveituna þar sem fræðst var um vélar og rafmagnsframleiðslu. Þar vakti gamla Guldner vélin einna mesta athygli en sú vél var í gömlu Rafstöðinni við Kirkjuveg hér í Eyjum og er reyndar eina vél sinnar tegundar sem til er í heiminum í dag. Á haustönninni voru skráðir 14 nemendur í grunndeild rafiðna en þar sér Guðjón Jónsson rafvirkjameistari um helstu þætti kennslunnar. Vélstjórafélagið færði skólanum að gjöf hermiforritið Multi Sim til kennslu í hinum ýmsu rafáföngum ásamt stýringum og færir skólinn þeim hjartanlegar þakkir fyrir. Haustönninni lauk svo á hefðbundinn hátt þann 19. des.
Vorönnin var svo sett 6. janúar 2010. Nemendur á vélstjórnarbraut eru 22 í hinum ýmsu fögum, á grunndeild rafiðna eru 10 nemendur og nokkrir nemendur úr Grunnskólanum í málmsmíði. Fyrir nokkru var ákveðið að fara af stað með raunfærnimat í vélstjórn líkt því sem er í mörgum iðngreinum. Þeir sem hafa rétt til að fara í raunfærnimat eru menn með a.m.k. fimm ára starfsreynslu sem vélstjórar en ekki réttindi eða nægileg réttindi til að gegna viðkomandi stöðu. Raunfærnimatið fer þannig fram að viðkomandi fá gátlista með spurningum úr viðkomandi greinum, þeir meta síðan eigin kunnáttu í hverri grein fyrir sig. Þegar því er lokið mæta þeir í sjálft matið þar sem kunnáttan er könnuð af fagaðilum. Standist þeir matið í viðkomandi áfanga telst honum lokið og þeir helja nám í framhaldsáföngum. Þetta fyrirkomulag byggir á því að ekki skiptir máli hvar eða hvernig viðkomandi aflaði sér þekkingarinnar heldur því hvort hann hefur þekkinguna eða ekki. Með þessum hætti má stytta sér verulega sjálfa skólagönguna. Framhaldsskólinn og Viska ákváðu að ríða á vaðið og var farið af stað með þetta í vetur. Í matsferlinu eru 9 vélstjórar og hafa 7 þeirra þegar lokið sínum hluta og stytt skólagönguna allt upp í 22 einingar (ein önn telst á bilinu 18-20 einingar). Það er Iðan, símenntunarmiðstöð, sem heldur utan um sjálft matið og komu þeir Gústaf A. Hjaltason og Kristján Kristjánsson hingað til Eyja þar sem þeir röktu úr mönnum garnirnar á fagmannlegan hátt þannig að allir fóru sáttir og ánæðir frá borði.
Starfsfólk Framhaldsskólans og nemendur færa sjómönnum bestu óskir um góða og happasæla framtíð og til hamingju með daginn.

Kynning á sjómönnum
Nafn? Ingi Þór Arnarsson.
Hvar ertu að róa? Bergey VE.
Hvaða stöðu gegnir þú? Háseti og leysi Rikka kokk af.
Hvar og hvenær hófst sjómannsferillinn? Það var á Hörpu VE sem að Ísfélagið átti, á því herrans ári 1999.
Varstu sjóveikur? Nei.
Hver er eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með? Það mun vera dúettinn Þorbjörn Víglundsson og Sveinn (Ægir) Ásgeirsson.
Hver er „sjómaður Íslands númer 1“? Jenni jaxl.
Er rétt að afnema sjómannaafsláttinn? Já, ef við fáum dagpeninga í staðinn.
Ertu á Facebook eða með heimasíðu? Já, Facebook.
Er ekki ógeðslega erfitt að vera sjómaður? Það getur verið það!!
Hver er munurinn á báti og skipi? Stærðin.
Má nota þokulúður þegar það er ekki þoka? Já.
Hverjir verða heimsmeistarar í knattspyrnu í sumar? Spánn.
Kanntu einhvern góðan brandara? Núna, langar mig til að faðma þig, liggja með þér í rúminu í nokkra daga, fá þig til að stynja og emja, svitna og skjálfa. Ég kem bráðum... Kveðja, Svínaflensan.
Eitthvað að lokum? Óli Óskars, það erflottur PEYI!!!

Kynning á sjómönnum
Nafn? Jón Berg Sigurðsson.
Hvar ertu að róa? Bylgju VE 75.
Hvaða stöðu gegnir þú? Háseti.
Hvar og hvenær hófst sjómannsferillinn? 1983. Á loðnuvertíð með Herði Jónssyni á Heimaey.
Varstu sjóveikur? Nei, og hef aldrei verið það.
Hver er eftirminnilegasti sjómaðurinn sem þú hefur róið með? Þeir eru nokkrir en ætli ég verði ekki að nefna nafna minn sem kallaður er hósti.
Hver er „sjómaður Íslands númer 1 “? Það er engin spurning í mínum huga að það er Guðfinnur Þorgeirsson.
Er rétt að afnema sjómannaafsláttinn? Já, þú meinar dagpeningana, taka alla dagpeninga af og líka þá hjá þeim sem hafa þá í landi. <br<Ertu á Facebook eða með heimasíðu? Er á Facebook.
Er ekki ógeðslega erfitt að vera sjómaður? Já og nei, meira fyrir suma en aðra.
Hver er munurinn á báti og skipi? Skip er stærra.
Má nota þokulúður þegar það er ekki þoka?
Hverjir verða heimsmeistarar í knattspyrnu í sumar? Ég ætla að tippa á Spánverja eða Brassa.
Kanntu einhvern góðan brandara? Hvernig fær maður konu til að öskra áfram í klukkutíma eftir samfarir? Maður þurrkar af limnum í gardínurnar.
Eitthvað að lokum? Til hamingju með daginn, allir.