Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2004/ Fjallasigling Fagrakletts

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Fjallasigling Fagrakletts



Jón Sæmundsson, skipstjóri

Enn sendir Benedikt Sæmundsson vélstjóri okkur ljóð í blaðið. Hann er frá Fagrafelli hér við Hvítingaveginn en hefur búið á Akureyri frá því um miðja síðustu öld. Benedikt er 96 ára, ótrúlega ern og vel á sig kominn. Ljóðið sem hann sendir okkur núna, Fjallasigling Fagrakletts, er um siglingu þessa skips í gegnum Skotland eftir Caladonian skurðinum, árið 1945. Þeir voru á leið til Fleetwood með ísfisk frá Vestmannaeyjum þegar þeim var snúið til Aberdeen. Skipstjórinn tók það ráð að fara fyrrnefndan skurð í staðinn fyrir að sigla norður fyrir Skotland.

Caladonian skurðurinn tengir saman Atlantshafið og Norðursjóinn. Mikið mannvirki sem sker Skotland í sundur. Þeir á Fagrakletti sigldu úr Atlantshafinu inn Loch Linnhe flóann hjá Forth Willams við suðvestur endann, inn í skurðinn 60 mílur til norðausturs og komu í gegn í botni Maríuflóans Norðursjávarmegin. Tvö stór vötn, sem siglt er á, eru á leiðinni. Það eru Loch Ness og Loch Lochy. Byrjað var að grafa skurðinn 1803 og 19 árum síðar, 1822, var hann opnaður. Caladonian styttir siglingaleiðina milli Atlantshafsins og Norðursjávarins mikið. Sjómenn, sem sigldu skurðinn, gátu losnað við erfiða siglingu, mikinn straum og stundum vond veður í gegnum Pentilinn,norðan við Skotland.

Fagriklettur GK 260, smíðaður á Akureyri 1943. 125 brl. mep 280 ha Lister vél

„Skipstjóri á Fagrakletti var Jón Sæmundsson, einhver besti skipstjóri sem ég var með,“ segir Benedikt, „mikill aflamaður og góður navigator. Stýrimaður var Ingólfur Þórðarson, sem síðar var lengi kennari við Stýrimannaskólann í Reykjavík, hvalabátaskipstjóri og skytta á sumrin. Benedikt var 1. vélstjóri og Hinrik Gíslason héðan úr Eyjum, Skólavegi 15, var 2. vélstjóri“.

Foringinn með Fagraklett
frægur varð í stríði
er hann sigldi alveg rétt
yfir fjöll, með prýði.

Ferðir margar fór hann greitt
til Fleetwood yfir hafið
en þá skeði aldrei neitt
sem undraljóma er vafið.

Eitt sinn fékk hann um það kall
til Aberdeen að fara
er Fagriklettur ferða snjall
til Fleetwood renndi bara.

Jóni Sæm, var vandi vís
að verða að sinna þessu
ferð um Skotlands fjöll hann kýs
með fisk í sölu pressu.

Keyrði hann inn í skipaskurð
og skipa lyftur margar
færðist yfir fjöll og urð
en flúðu örn og vargar.

Sjálfan skurðinn sigldum frítt
svo, með hrausta drengi
yfir Loch Ness vatnið vítt
vorum ekki lengi.

Einn var skurður eftir beinn
út í Maríu flóann
ekki var hann alveg hreinn
yfir hættum bjó hann.

Fátt var verra en festa þar
Fagraklett í sandi
Jóni ljós sá vandi var
að vera uppi á landi.

Hringdi á fulla ferð, með hrað
er fór að nálgast grunnið
aftur stopp, uns yfir það
okkar skip var runnið.

Skipið lyftist, skaust fram rétt
er skrúfan hætti að vinna
hugsun Jóns var hröð og rétt
heilla ráð að finna.

Til Aberdeen var siglt, með sæmd,
selt í besta gengi.
Ferðin af flestum dæmd,
frægust sigling lengi.

Oft rauk sjórinn eins og mjöll
er þá hætt víð grandi.
En að sigla yfir fjöll
er þó meiri vandi.