Sigurvin Þorsteinsson (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurvin Þorsteinsson frá Vesturhúsum-eystri fæddist 5. janúar 1950 og lést 10. júlí 1980. Foreldrar hans voru Þorsteinn Ólafsson verkamaður, f. 24. júní 1896 í Dufþaksholti í Hvolhreppi, d. 13. apríl 1967, og kona hans Gíslný Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 3. júlí 1911 í Efri-Vatnahjáleigu í A.-Landeyjum, d. 14. janúar 1993.

Börn Gíslnýjar og Þorsteins:
1. Jóhanna húsfreyja að Hilmisgötu 1, síðar iðnverkakona í Innri Njarðvík, f. 25. marz 1930, d. 21. nóvember 2000, gift Jóhannesi P. Sigmarssyni múrara og vélstjóra.
2. Tryggvi kennari í Arendal í Noregi, f. 13. maí 1931, kvæntur Inger Thorsteinsson, fædd Thorvaldsen,
3. Ólafía verkakona í Reykjavík, f. 9. nóvember 1933, gift Guðna Þ. Ágústssyni rafeindavirkja. Hún ólst upp hjá föðurbróður sínum Magnúsi Ólafssyni í Hvolhreppi í Rangárvallasýslu,
4. Trausti vélvirki í Kópavogi, f. 14. febr. 1935, kvæntur Önnu Finnsdóttur skrifstofumanni,
5. Halla skólastarfsmaður á Akranesi, f. 7. maí 1936, gift Þórði Þórðarsyni netagerðarmanni,
6. Lilja iðnverkakona í Reykjavík, f. 28. sept. 1937, gift Inga S. Sigmarssyni verzlunarmanni, en hann er bróðir Jóhannesar manns Jóhönnu systur Lilju,
7. Reynir húsgagnabólstrari í Kópavogi, f. 8. nóvember 1938, kvæntur Grétu Jansen skrifstofumanni,
8. Sólveig verzlunarmaður í Reykjavík, f. 26. febrúar 1940, gift Inga B. Guðjónssyni húsasmið,
9. Birgir húsgagnasmiður í Reykjavík, f. 9. marz 1942, kvæntur Sigrúnu Halldórsdóttur kennara,
10. Guðrún húsfreyja í Seattle í Bandaríkjunum, f. 17. maí 1943, fyrr gift Magnúsi Sigurðssyni verkamanni, síðar Richard L. Campbell tölvufræðingi,
11. Jónína iðnverkakona í Kópavegi, f. 23. september 1944, gift Guðjóni Þorbergssyni iðnverkamanni,
12. Smári iðnverkamaður í Reykjavík, f. 18. marz 1946, ókvæntur,
13. Svanur rafeindavirki í Kópavogi, f. 2. október 1947, kvæntur Svanhildi Svansdóttur læknaritara,
14. Sigurvin sjómaður í Eyjum, f. 5. janúar 1950, d. 10. júlí 1980, fórst með v.b. Skuld.
15. Vilborg bóndi á Sléttabóli á Skeiðum, f. 22. nóvember 1951, gift Jóhannesi Eggertssyni bónda,
16. Sigurbjörg húsfreyja, f. 6. febrúar 1953, gift Jóhannesi Ragnarssyni vélstjóra, verkstjóra, innflytjanda.

Sigurvin var með foreldrum sínum, en faðir hans lést, er Sigurvin var 17 ára.
Hann var sjómaður, var matsveinn á Skuld VE 263 og fórst með henni 10. júlí 1980.
Hann var ókvæntur, bjó við Hásteinsveg 33.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.