Guðrún Þorsteinsdóttir (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Þorsteinsdóttir frá Vesturhúsum-eystri, fiskiðnaðarkona, húsfreyja fæddist 17. maí 1943.
Foreldrar hennar voru Þorsteinn Ólafsson á Vesturhúsum, verkamaður, f. 24. júní 1896 í Dufþalsholti í Hvolhreppi, d. 13. apríl 1967, og kona hans Gíslný Jóhannsdóttir frá Efri-Vatnahjáleigu, húsfreyja, f. þar 3. júlí 1911, d. 14. janúar 1993 í Reykjavík.

Börn Gíslnýju og Þorsteins:
1. Jóhanna húsfreyja að Hilmisgötu 1, síðar iðnverkakona í Innri Njarðvík, f. 25. marz 1930, d. 21. nóvember 2000, gift Jóhannesi P. Sigmarssyni múrara og vélstjóra.
2. Tryggvi kennari í Arendal í Noregi, f. 13. maí 1931, kvæntur Inger Thorsteinsson, fædd Thorvaldsen
3. Ólafía verkakona í Reykjavík, f. 9. nóvember 1933, gift Guðna Þ. Ágústssyni rafeindavirkja. Hún ólst upp hjá föðurbróður sínum Magnúsi Ólafssyni í Hvolhreppi í Rangárvallasýslu.
4. Trausti vélvirki í Kópavogi, f. 14. febr. 1935, kvæntur Önnu Finnsdóttur skrifstofumanni.
5. Halla skólastarfsmaður á Akranesi, f. 7. maí 1936, gift Þórði Þórðarsyni netagerðarmanni.
6. Lilja iðnverkakona í Reykjavík, f. 28. sept. 1937, gift Inga S. Sigmarssyni verzlunarmanni, en hann er bróðir Jóhannesar manns Jóhönnu systur Lilju.
7. Reynir húsgagnabólstrari í Kópavogi, f. 8. nóvember 1938, kvæntur Grétu Jansen skrifstofumanni.
8. Sólveig verzlunarmaður í Reykjavík, f. 26. febrúar 1940, gift Inga B. Guðjónssyni húsasmið.
9. Birgir húsgagnasmiður í Reykjavík, f. 9. marz 1942, kvæntur Sigrúnu Halldórsdóttur kennara.
10. Guðrún húsfreyja í Seattle í Bandaríkjunum, f. 17. maí 1943, fyrr gift Magnúsi Sigurðssyni verkamanni, síðar Richard L. Campbell tölvuverkfræðingi.
11. Jónína iðnverkakona í Kópavegi, f. 23. september 1944, gift Guðjóni Þorbergssyni iðnverkamanni.
12. Smári iðnverkamaður í Reykjavík, f. 18. marz 1946, ókvæntur.
13. Svanur rafeindavirki í Kópavogi, f. 2. október 1947, kvæntur Svanhildi Svansdóttur læknaritara.
14. Sigurvin sjómaður í Eyjum, f. 5. janúar 1950, d. 10. júlí 1980, fórst með v.b. Skuld.
15. Vilborg bóndi á Sléttabóli á Skeiðum, f. 22. nóvember 1951, gift Jóhannesi Eggertssyni bónda.
16. Sigurbjörg húsfreyja, f. 6. febrúar 1953, gift Jóhannesi Ragnarssyni vélstjóra, verkstjóra, innflytjanda.

Guðrún var fiskiðnaðarkona í Vinnslustöðinni. Hún flutti til Keflavíkur 28 ára gömul.
Þau Magnús giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Miðtún 3 í Keflavík, við Sólhlíð 19, við Kirkjubæjarbraut 2 við Gos 1973, fluttu til Keflavíkur. Þau skildu.
Þau Richard giftu sig 1985, eignuðust ekki börn. Þau bjuggu í Keflavík, Þýskalandi, Saudi Arabíu, Frakklandi, síðan í Seattle í Bandaríkjunum í tvö ár, en síðast í Chuluota í Florída frá 2004.

I. Maður Guðrúnar, skildu, var Magnús Stefán Sigurðsson verkamaður, f. 14. september 1938 í Keflavík, d. 23. júní 1996.
Börn þeirra:
1. María Magnúsdóttir húsfreyja, verkakona, skrifstofumaður, verslunarmaður í Reykjavík, f. 15. desember 1959 í Keflavík. Maður hennar Viðar Erlingsson.
2. Sigurður Magnússon þungavinnuvélastjóri, f. 19. apríl 1965 í Eyjum. Kona hans Björk Reynisdóttir.

II. Maður Guðrúnar, (3. janúar 1985 í Bandaríkjunum), er Richard L. Campell tölvuverkfræðingur, f. 3. mars 1945.
Þau eru barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Guðrún.
  • Íslendingabók.
  • Íbúaskrá 1972.
  • Morgunblaðið 5. júlí 1996. Minning Magnúsar Stefáns.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.