Sigurlaug Bjarnadóttir (deildarstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Sigurlaug Bjarnadóttir)
Fara í flakk Fara í leit

Sigurlaug Bjarnadóttir húsfreyja, deildarstjóri fæddist 6. október 1954 í Geysi við Skólaveg 21.
Foreldrar hennar voru Bjarni Sighvatsson frá Ási, sjómaður, stýrimaður, verkstjóri, stjórnarformaður, f. 2. desember 1932, d. 9. október 2018, og kona hans Dóra Guðlaugsdóttir frá Geysi, húsfreyja, kaupmaður, f. 29. desember 1934, d. 26. nóvember 2007.

Börn Dóru og Bjarna:
1. Sigurlaug Bjarnadóttir húsfreyja, deildarstjóri, f. 6. október 1954. Maður hennar Páll Sveinsson.
2. Guðmunda Áslaug Bjarnadóttir húsfreyja, f. 8. september 1956. Maður hennar Viðar Elíasson.
3. Sighvatur Bjarnason, f. 4. janúar 1962. Kona hans Ragnhildur S. Gottskálksdóttir.
4. Ingibjörg Rannveig Bjarnadóttir, f. 2. september 1970. Maður hennar Halldór Arnarson.
5. Hinrik Örn Bjarnason, f. 15. september 1972. Kona hans Anna Jónína Sævarsdóttir.

Sigurlaug var með foreldrum sínum við Brimhólabraut 9.
Hún lauk prófum í Verslunarskóla Íslands 1973, lauk námi í Fósturskóla Íslands 1981, tók B.Ed.-próf í University of Hull á Bretlandi 1995 og M.Ed.-próf í sama skóla 1999.
Sigurlaug er deildarstjóri leikskóladeildar Kópavogsbæjar.
Hún eignaðist barn með Gunnari 1974.
Þau Páll giftu sig 1984, eignuðust þrjú börn. Þau búa í Kópavogi.

I. Barnsfaðir Sigurlaugar er Gunnar Már Karlsson Jóhanns Gunnarssonar, f. 16. apríl 1954.
Barn þeirra:
1. Dóra Björk Gunnarsdóttir kennari, hafnarstjóri í Eyjum, f. 25. ágúst 1974. Maður hennar Viðar Einarsson Ólafssonar.

II. Maður Sigurlaugar, (12. júní 1984), er Páll Sveinsson athafnamaður, f. 6. ágúst 1950. Foreldrar hans voru Sveinn Pálsson menntaskólakennari á Laugarvatni, f. 30. september 1922, d. 18. apríl 1991, og kona hans Helena Pálsson húsfreyja, svissneskrar ættar.
Börn þeirra:
1. Sara Pálsdóttir viðskiptafræðingur, með mastersgráðu í Alþjóðaviðskiptum, starfsmaður Landsbankans, f. 8. mars 1983. Sambúðarmaður hennar Kjartan Á. Guðbergsson.
2. Arna Sif Pálsdóttir. grafískur hönnuður, f. 5. janúar 1988. Maður hennar Þorkell Helgi Sigfússon.
3. Sighvatur Pálsson viðskiptafræðingur, f. 14. maí 1990.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.