Sigurjón Sigurjónsson (Kirkjuvegi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurjón Sigurjónsson frá Kirkjuvegi 86 verkamaður fæddist þar 12. maí 1932 og fórst í Glitfaxaslysinu 31. janúar 1951.
Foreldrar hans voru Sigurjón Sigurðsson frá Brekkuhúsi, bátsformaður, útgerðarmaður, fiskimatsmaður, fisksali, f. 6. mars 1890 í Hallgeirsey í A-Landeyjum, d. 8. júní 1959, og síðari kona hans Ingibjörg Högnadóttir húsfreyja, f. 23. desember 1904, d. 3. september 1991.

Börn Sigurjóns og fyrri konu hans Kristínar Óladóttur:
1. Sigurbjörg Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 27. desember 1910 í Brekkuhúsi, d. 24. júní 1971, gift Boga Ólafssyni skipstjóra, f. 1. nóvember 1910, d. 1. janúar 2003.
2. Sigurður Óli Sigurjónsson skipstjóri, f. 24. janúar 1912 á Kirkjulandi, d. 16. júní 1981. Kona hans var Jóhanna Kristín Helgadóttir, f. 9. október 1915 í Eyjum, d. 7. október 2000.
4. Aðalheiður, dó þriggja ára.
5. Jóhanna Sigurjónsdóttir húafreyja, kaupkona, f. 21. ágúst 1915 á Mosfelli, d. 28. mars 1989, gift Sigurði Guðmundssyni brunaverði, f. 12. ágúst 1918, d. 15. nóvember 1992.
6. Ragnhildur Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 16. júlí 1918 í Gvendarhúsi, d. 4. júlí 2009, gift Sigurði Eyjólfssyni prentara í Reykjavík.
7. Drengur, tvíburi við Ragnhildi, fæddist og dó sama dag.
8. Margrét Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 20. desember 1923 í Pálshúsi, d. 21. nóvember 2016, gift Elíasi Gunnlaugssyni skipstjóra, f. 22. febrúar 1922.
9. Aðalheiður Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 16. maí 1926 á Þingeyri, gift: 1) Antoni Jónssyni skipasmið, f. 4. febrúar 1924, d. 18. janúar 2009. Þau skildu, 2) Gísla Ólafssyni bifreiðastjóra, f. 21. júní 1926, d. 20. október 2002.
Fóstursonur Kristínar fyrstu ár ævi sinnar var
10. Ingvi Rafn Jónsson sjómaður, verkamaður, f. 31. júlí 1937, sonur Jóhönnu dóttur hennar. Hann fór til móður sinnar, er hún fór að búa.
Börn Sigurjóns og síðari konu hans Ingibjargar Högnadóttur:
11. Sigurjón Sigurjónsson, f. 12. maí 1932, fórst í flugslysi 31. júlí 1951.
12. Marta Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 5. febrúar 1936.

Sigurjón var með foreldrum sínum frá fæðingu. Hann fórst, er Glitfaxi, flugvél Flugfélags Íslands, fórst í Faxaflóa út af Vatnsleysuströnd 31. janúar 1951.
Sigurjón var ókvæntur.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.