Sigurjón Pálsson (Rafnseyri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurjón Pálsson frá Keflavík, sjómaður, vélgæslumaður fæddist 12. ágúst 1896 og lést 15. ágúst 1975.
Foreldrar hans voru Páll Magnússon frá Keflavík, sjómaður, f. 12. apríl 1851, d. 21. maí 1934, og síðari kona hans Þuríður Nikulásdóttir frá Berjaneskoti u. Eyjafjöllum, húsfreyja, f. 18. sept. 1855 þar, d. 30. september 1940.

Sigurjón var með foreldrum sínum í Keflavík í æsku.
Hann var sjómaður í Eyjum 1919, bjó þá með Helgu á Rafnseyri, Þau eignuðust tvíbura á því ári. Hann kvæntist Helgu 1920 og bjó með henni á Eystri Vesturhúsum á árinu.
Þau fluttust til Keflavíkur, bjuggu þar í þrjú ár, en sneru þá til Eyja, bjuggu á Kirkjubæ 1927.
Þau fluttust til Reykjavíkur 1929.
Sigurjón var sjómaður, síðar vélgæslumaður, síðast hjá Grjótnámi Reykjavíkurborgar í 25 ár.
Hann lést 1975, en Helga 1989.

Kona Sigurjóns, (20. maí 1920), var Helga Finnsdóttir húsfreyja, kjólameistari, f. 28. september 1895 á Stóru-Borg u. Eyjafjöllum, d. 25. apríl 1989.
Börn þeirra:
1. Finnur Sigurjónsson, tvíburi, bókavörður á Seltjarnarnesi, f. 14. nóv. 1919 á Rafnseyri, d. 18. ágúst 1997. Hann var ókvæntur.
2. Sigurjón Helgi Sigurjónsson, tvíburi, f. 14. nóv. 1919 á Rafnseyri, d. 24. desember 1936.
3. Henný Dagný Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 29. apríl 1922, d. 27. janúar 2005. Maður hennar var Einar Þorsteinsson rakarameistari, f. 19. ágúst 1921, d. 14. apríl 1978.
4. Ólöf Ingibjörg Sigurjónsdóttir húsfreyja, f. 4. október 1923 í Keflavík, d. 28. september 1994. Maður hennar var Helgi Eiríksson aðalbókari, f. 13. febrúar 1922 í Sandfelli í Öræfum, d. 13. nóvember 2009.
5. Pálína Sigurjónsdóttir húsfreyja, hjúkrunarforstjóri, f. 17. júní 1931 í Reykjavík. Maður hennar var Sigmundur Ragnar Helgason bankamaður, f. 7. desember 1927, d. 2. nóvember 2008.
6. Jóhanna Kristín Sigurjónsdóttir húsfreyja í New York, f. 31. maí 1935, d. 21. ágúst 2005. Maður hennar Fróði Ellerup f. 17. febrúar á Seyðisfirði, vélfræðingur.
Fósturdóttir þeirra fyrstu fimm ár ævinnar, dóttir Ólafar Ingibjargar, er
7. Sigrún Dúfa Helgadóttir, f. 25. október 1942.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.