Sigurjón Ísleiksson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigurjón Ísleiksson frá Kornhól, síðar í Utah fæddist 18. september 1884 í Kornhól og lést 23. júní 1916 í Spanish Fork.
Foreldrar hans voru Ísleikur Ólafsson bóndi, f. 15. júlí 1850 á Voðmúlastöðum í A-Landeyjum, d. 17. desmber 1923 í Utah, og kona hans Elísabet Eiríksdóttir húsfreyja frá Gjábakka, f. 17. júní 1849, d. 27. ágúst 1937 í Utah.

Börn Elísabetar og Ísleiks hér:
1. Jón Ísleiksson, f. 1880, d. 13. júní 1882 úr barnaveiki.
2. Karel Ísleiksson, (einnig ritað Karl), f. 26. júlí 1882 á Sólheimum í Mýrdal, d. 20. júní 1886 úr barnaveiki.
3. Sigurjón Ísleiksson, f. 18. september 1884, d. 23. júní 1916.
4. Kjartan Ísleiksson, f. 7. júlí 1886, d. 15. júlí 1886.
5. Karólína Ingibjörg Ísleiksdóttir, f. 15. september 1887, d. 16. febrúar 1981.

Sigurjón var með foreldrum sínum og fluttist með þeim til Utah 1890.
Þau Anna giftust 1911.
Sigurjón lést 1916.

Kona Sigurjóns, (14. september 1911), var Anna Sigríður Halldórsdóttir húsfreyja, f. 22. nóvember 1882 á Þórustöðum í Holti í Önundarfirði, d. í mars 1968 í Bermerton í Washington fylki.
Börn þeirra:
1. Harold Haldor Olson, f. 26. júní 1912 í Spanish Fork, d. 29. september 1974 í San Mateo í Kaliforníu. Kona hans, skildu, var Regina Bernice Carr.
2. Elsie Olson, f. 16. janúar 1914 í Spanish Fork, d. 6. október 2002 í Provo, Utah.
3. Carl Olson, f. 22. nóvember 1915, d. 24. mars 1997 í Salt Lake City í Utah. Kona hans Rhoda Dean Smith.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Magnús Haraldsson.
  • Prestþjónustubækur.
  • The Icelanders of Utah. La Nora Allred.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.